Forvarnardagurinn áttunda árið í röð Stefán Árni Pálsson skrifar 30. september 2014 14:19 Hér má sjá Ólaf Ragnar á Forvarnardeginum árið 2012.
Forvarnardagurinn fer fram á morgun en hann er haldinn í grunn- og framhaldsskólum landsins. Af því tilefni heimsækir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands einn grunnskóla og einn framhaldsskóla. Forsetinn verður í Vogaskóla í Reykjavík klukkan níu um morguninn og klukkan hálf ellefu heldur hann yfir í Menntaskólann við Sund. Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, heimsækir Laugalækjarskóla klukkan ellefu. Bæði Ólafur og Dagur ætla sér að ræða við nemendur og kynnast sjónarmiðum þeirra um forvarnir og ávinninginn af því að seinka notkun áfengis og hverskyns vímuefna sem lengst. Nýlegar rannsóknir á íþróttastarfi ungmenna benda til að þær hafi þá aðeins forvarnargildi ef þær eru stundaðar með formlegum og skipulegum hætti. Rannsóknir sýna líka að Íslendingar hafa náð frábærum árangri í að draga úr notkun tóbaks og áfengis í grunnskólum undanfarinn áratug og er mikilvægt að halda þeim góða árangri. Auk þess er mikilvægt að efla það góða forvarnastarf sem fram fer víða í framhaldsskólum. Sérstakur forvarnardagur af þessu tagi hefur nú verið haldinn á hverju hausti undanfarin átta ár að frumkvæði forseta Íslands. Að deginum standa Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Félag íslenskra framhaldsskóla og Rannsóknir og greining. Dagurinn er skipulagður með stuðningi lyfjafyrirtækisins Actavis.
Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira