Husky-hundur drap sex lömb Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. september 2014 16:22 Eigendur hundsins eru nú að athuga með tryggingar svo hægt sé að bæta tjónið sem hundurinn olli. Vísir/Getty/Vilhelm
Husky-hundur, sem slapp frá ferðamönnum og gekk laus í sex daga á Snæfellsnesi, drap sex lömb og særði eitt í liðinni viku. RÚV greindi fyrst frá málinu. Þóra Sif Kópsdóttir, bóndi á Ystu-Görðum, átti lömbin. Hún segir í samtali við Vísi að hundurinn hafi sloppið frá eigendum sínum á sunnudeginum fyrir viku en enginn af íbúum í sveitinni hafi haft hugmynd um að hundur gengi laus á svæðinu. „Við sjáum fyrsta lambið á miðvikudeginum. Það var úti í miðjum læk svo við komumst ekki til að ná í það. Þar af leiðandi vissum við ekki hvernig það hafði dáið. Á miðvikudeginum sjáum við svo reyndar auglýsingu á Facebook þar sem lýst er eftir hund sem hafði sloppið.“ Þóra segir að á föstudeginum hafi þau síðan komið á auga á blóðugt lamb úti í læk. Þá hafi þau vitað að eitthvað mikið væri að og hafið leit að hundinum. Hann fannst svo á laugardeginum þegar verið var að smala. Hundurinn var aflífaður á staðnum. Öll lömbin sem fundust voru úti í læk. Þóra segir að þegar lömb þurfi að verja sig og séu uppgefin þá leiti þau í vatn. Aðspurð segir hún að eigendur hundsins séu nú að athuga með tryggingar svo hægt sé að bæta tjónið sem hundurinn olli.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Sjá meira