Á leið til Gasa með 58 kíló af efni í gervifætur Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2014 15:30 Sveinn Rúnar fór af landi brott um hádegisbil í dag. Mynd/Björk Vilhelmsdóttir „
Ég er að taka rúm 58 kíló af efni í gervifætur, fyrir utan minn eigin farangur,“ sagði Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Ísland-Palestína, þegar Vísir náði tali af honum fyrr í dag. „Þetta á að duga í tuttugu gervifætur sem eiga að hjálpa tuttugu manns og að auki er ég með verkfæri sem vantaði, í samræmi við óskalista sem kom frá gervilimastöðinni ALPC í Gasaborg.“ Sveinn Rúnar var staddur á Keflavíkurflugvelli þegar Vísir náði tali af honum en hann flaug af landi brott um hádegisbil. „Ég er enn og aftur á leiðinni til Gasa, reyndar með viðkomu á Vesturbakkanum,“ en Sveinn Rúnar sem gerir ráð fyrir að vera úti í um þrjár vikur. „Ég ætla að heimsækja okkar samstarfsaðila og fylgja eftir og hafa eftirlit með því hvernig gengur að koma okkar aðstoð til skila. Það safnaðist mjög mikið í sumar og það hefur alltaf verið okkar kjörorð að hver einasta króna komist óskert til skila,“ segir Sveinn Rúnar sem mun fyrst fljúga til Amman í Jórdaníu áður en hann fer á Vesturbakkann og svo Gasa.Þörfin aldrei eins átakanleg og núna Sveinn Rúnar segir beiðni hafa komið til félagsins Ísland-Palestína frá Gervilimastöðinni á Gasa sem félagið hefur unnið með síðan 2009. „Það samstarf byrjaði að frumkvæði Össurar Kristinssonar og hans fyrirtækis, OK Prosthetics, sem hefur víða um heim verið að kenna fólki hvernig á að smíða hágæðagervifætur á örstuttum tíma. Þetta er það sem gerst hefur á Gasa. Ég hef notað hverja ferð til að fara með efni til viðbótar, reyndar aldrei meira en núna, enda þörfin sennilega aldrei eins átakanleg eins og núna eftir þetta fimmtíu daga árásarstríð í sumar.“ Sveinn Rúnar segist jafnframt ætla að fylgjast með öðrum verkefnum félagsins. „Við erum í samvinnu við Læknishjálparsamtökin á Gasa sem eru að dreifa neyðaraðstoð til fólks sem hefur misst allt og höfum raunar leitað eftir samvinnu við utanríkisráðuneytið og mætt góðum velvilja þar.“ Að sögn Sveins Rúnars mun hann einnig heimsækja annað verkefni sem Ísland-Palestína hefur verið með í gangi. „Það er stuðningur við AISHA-kvennahúsið, sem er sambland af Stígamótum, kvennaráðgjöf og starfsþjálfun fyrir konur og börn sem hafa þurft að þola ofbeldi. Við höfum því verið að safna fyrir innkaupum á efni í gervifæturna, styðja kvennahúsið og læknishjálparsamtökin í neyðarhjálpinni.“ Post by Björk Vilhelmsdóttir.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira