Fréttastef RÚV notað í óleyfi: Búið að loka fyrir myndböndin Kjartan Atli Kjartansson skrifar 22. september 2014 12:25 Birgir Tryggvason er höfundur fréttastefsins á RÚV.
Bresku samtökin Alexandra Palace Television Society, sem notuðu fréttastef Ríkissjónvarpsins í óþökk höfundarins, hafa nú tekið lokað fyrir aðgang að myndböndum sínum á Youtube. „Ég er hræddur um að ég viti ekki mikið um þetta stef,“ segir Simon Vaughan, skjavörður samtakanna í svari fyrir fyrrispurn Vísis um málið. Vísir fjallaði um málið í síðustu viku. Samtökin voru með mikinn fjölda myndbanda á Youtube-síðu sinni og rúmlega 2500 áskrifendur. Myndböndin á síðu samtakanna voru afar vinsæl, en í síðustu viku var samanlagt áhorf á þau rúmlega tvær og hálf milljón skipta. Í upphafi hvers myndbands var fréttastef Ríkissjónvarpsins spilað, en það stef var samið af Birgi Tryggvasyni sem er afar ósáttur með þessa ólöglegu notkun.Sóttu á netið fyrir nokkrum árum „Við sóttum stefið á netinu fyrir um þremur til fjórum árum síðan,“ segir Vaughan í samtali við Vísi. Í síðustu viku mátti þó sjá að elsta myndbandið þar sem fréttastefið var notað á vegum samtakanna var frá árinu 2009. „Við sóttum það á vefsíðu þar sem hægt var að sækja tónlist sem var ekki varin með höfundarétti og okkur þótti það passa vel við merki samtakanna sem við vildum sýna í upphafi hvers myndbands. Ég hræddur um að ég viti ekkert um hvort það sé notað á Íslandi,“ segir Vaughan ennfremur í samtali við Vísi.Vill að STEF gæti réttar síns Birgir Tryggvason höfundur hefur leitað til Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF) og vill að samtökin beiti sér í málinu. Hann vill leita réttar síns gagnvart samtökunum. „Þetta er auðvitað fyrst og fremst furðulegt mál. Ég vil að STEF gæti réttar míns í þessu máli,“ segir hann. Birgir furðar sig á svörum Vaughan. „Ég veit ekki á hvaða vefsíðu þeir hafa sótt stefið. Það væri mjög athyglisvert að vita það. Við erum búnir að fasa hljóðbútinn út og snúa honum við. Það er algjörlega staðfest að þetta er minn hljóðbútur en hljómgæðin eru einstaklega slæm,“ bætir hann við. Birgir segir að það líti út fyrir að einhver hafi tekið þetta upp úr fréttatíma RÚV, klippt hljóðbútinn niður og svo sett hann á netið.APTS verðlaunað Á vefsíðu Alexandra Palace Television Society, sem reyndar virðist komin svolítið til ára sinna, er tekið fram að samtökin hafi unnið til hinn svokallaða Shiers Trust styrk árið 2001. Styrkurinn er veittur af hinum svokölluðu Royal Television Society samtökum. Styrkurinn er veittur árlega er er allt að tvö þúsund pund, eða tæplega fjögur hundruð þúsund krónur. Markmiðið með styrkveitingunni er að verðlauna þá sem rannsaka, kynna og kenna sögu sjónvarpsins á einhvern hátt. Meðal þeirra sem hafa fengið styrk er sir David Attenborough, sjónvarpsmaðurinn frægi. Á Youtube-síðu APTS-samtakanna kemur fram að samtökin vilji varðveita munlega og skriflega sögu frumkvöðla í þróunar sjónvarpsins. Nafn samtakanna er dregið af Alexandra Palace í norðurhluta Lúndúna, en á síðunni kemur fram að þar hafi fyrstu reglulegu, skýru sjónvarpsútsendingarnar hafist árið 1936. Einnig er tekið fram að allir þeir sem steli efni af síðunni verði tilkynntir til stjórnenda Youtube.
Tengdar fréttir Fréttastefi Ríkissjónvarpsins stolið "Þetta er ólöglegt. Þetta er óþolandi. Þetta er í fjórða sinn sem ég heyri stefið notað ólöglega annarsstaðar," segir höfundurinn. 19. september 2014 11:40 Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira
Fréttastefi Ríkissjónvarpsins stolið "Þetta er ólöglegt. Þetta er óþolandi. Þetta er í fjórða sinn sem ég heyri stefið notað ólöglega annarsstaðar," segir höfundurinn. 19. september 2014 11:40