Blæs á sögusagnir: „Dóttir mín sér alveg um sig sjálf“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 24. september 2014 14:14 Sigrún Magnúsdóttir er þingflokksformaður Framsóknar. „
Ég er bara sjokkeruð,“ segir Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Spurningar hafa vaknað í sambandi við þingsályktunartillögu hennar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir stofnun rannsóknarklasa á sviði taugavísinda og taugahrörnunarsjúkdóma.Á bloggsíðu sinni benti til dæmis Einar Steingrímsson á að dóttir Sigrúnar stundar rannsóknir á þessu sviði: „Varla getur verið að Sigrún sé beinlínis að leggja til að Alþingi veiti sérstöku fé í rannsóknir á sérsviði dóttur sinnar?“ spyr Einar. Einar segir ennfremur: „Ýmsir hafa látið heyra það í sér að ekki sé gott að þingmenn reyni að handstýra vísindastarfi í landinu, enda sé ómögulegt að sjá fyrir á hvaða sviðum líklegast sé að framfarir verði í vísindarannsóknum, og alls ekki sé hægt að tryggja árangur á tilteknu sérsviði með því að veita í það fé.“„Maður ætti að hætta þessu helvíti“ Sigrún er ósátt við þessa gagnrýni og segir það af og frá að hún hafi verið að hugsa um fjárhagslega afkomu dóttur sinnar þegar hún fékk hugmyndina að þingsályktunartillögunni. „Dóttir mín sér alveg um sig sjálf. Hún starfar ekki á Íslandi. Hún er vísindamaður erlendis og ég er afar stolt af henni. Hún rekur eigin vísindastofu í Cambridge. Eftir nám sitt var hún valin í vísindaráð Frakka og svo veit ég að hún starfar líka í Oslóarháskóla,“ útskýrir Sigrún.Þannig að dóttir þín mun ekki vera hluti af þessum rannsóknarklasa?„Nei, nei, nei það get ég ekki ímyndað mér,“ svarar Sigrún og heldur áfram ósátt: „Mér finnst fráleitt að einhver skuli halda þetta. Ég skil ekki þessa illsku. Ég reyni að setja fram hugmynd sem kemur samfélaginu til góða en þetta er netið. Maður býr við þetta. Maður ætti að hætta þessu helvíti.“Upphafið var ísfötuáskorunin Sigrún segir að hugmyndin að þingsályktunartillögunni hafi komið þegar ísfötuáskorunin fór eins og eldur í sinu um netheima. „Stjörnur og fyrrum forsetar ríkja heimsins tóku vel í þessa áskorun eins og við munum öll eftir. Í kjölfarið sendi maður að nafni Loftur Altice Þorsteinsson öllum þingmönnum tölvupóst þar em hann skoraði á okkur að veita rannsóknum á MND-sjúkdómnum liðsinni. Ég bauð honum svo til mín til skrafs og ráðagerða.“ Í þingsályktunartillögunni segir meðal annars:„Ísland hentar sérstaklega vel sem miðstöð rannsókna á sviði taugavísinda þar sem þjóðin er fámenn, ættartengsl ljósari en hjá flestum öðrum þjóðum og veruleg vísindaþekking er til staðar. Rannsóknum á taugasjúkdómum hefur fleygt mjög fram á allra síðustu árum og gefa taugavísindamenn vonir um lækningar á ýmsum hrörnunarsjúkdómum sem hrjá mannkynið. Ný tækni og framfarir í rannsóknum á stofnfrumum gefur von um lækningu á gölluðum heilafrumum.“Í samtali við Vísi nefnir Sigrún Magnúsdóttir sérstaklega Kára Stefánsson og viðurkenningu sem hann hlaut frá bandarísku Alzheimerssamtökunum. Einnig er minnst á þetta í þingsályktunartillögunni. En þar segir:„Í þessu samhengi fer ágætlega á því að benda á að Kári Stefánsson, stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar, hlaut nýverið viðurkenningu bandarísku Alzheimerssamtakanna fyrir rannsóknir á alzheimersjúkdómnum. Sú viðurkenning er vitnisburður þess að hér á landi er að finna dýrmæta þekkingu og reynslu á sviði rannsókna á taugasjúkdómum.“
Alþingi Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Fleiri fréttir Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Sjá meira