Vilja að auðlegðarskattur verði notaður til að fjármagna nýjan Landspítala Aðalsteinn Kjartansson skrifar 25. september 2014 13:55 Steingrímur fer fyrir þriggja manna hópi þingmanna sem vilja leggja auðlegðarskatt á að nýju. Vísir / GVA
Leggja á auðlegðarskatt að nýju til að fjármagna byggingu nýs Landspítala. Þetta er tillaga þriggja þingmanna Vinstri grænna sem hafa lagt fram frumvarp með þessum hugmyndum. Þingmennirnir vilja að auðlegðarskattur verði lagður á einstaklinga fram til 2019 og að allar tekjur sem innheimtist vegna skattsins frá og með næsta ári renni óskiptar til sjóðsins. Þingmennirnir sem um ræðir eru Steingrímur J. Sigfússon, sem gegndi stöðu fjármálráðherra þegar auðlegðarskattur var lagður á, Svandís Svavarsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir. Frumvarpinu var dreift á þingi í dag.Leggja til nýtt frítekjumark Tillögurnar fela í sér breytingar á auðlegðarskatti sem lagðist af í ár. Er það til að mæta gagnrýni um að álagning skattsins hafi verið fullíþyngjandi fyrir þá af sem áttu stóran hluta þeirrar hreinu eignar sem myndaði skattstofninn í formi íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Leggja þingmennirnir til að sérstakt frímark vegna íbúðarhúsnæðis verði sett.Bjarni sagði í morgun að spítalinn yrði ekki byggður ef það þýddi halla á ríkissjóði.Vísir / ErnirÞingmennirnir áætla að þetta nýja frítekjumark hafi í för með sér að einu milljarði minna skili sér í ríkissjóð vegna skattheimtunnar. Áætlaðar tekjur Reyna að forgangsraða fjármunum Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lýsti því yfir á þingi í morgun að ekki yrði ráðist í byggingu nýs spítala ef það hefði í för með sér hallarekstur á ríkissjóði. Sagði hann vinnu í gangi í eigin ráðuneyti og velferðarráðuneytinu við að finna leiðir til að forgangsraða fjármunum til verkefnisins. Talið er að bygging nýs Landspítala kosti á bilinu 60 til 80 milljarða króna.
Alþingi Tengdar fréttir Spítalinn verður ekki byggður nema annað verði skorið niður Bjarni Benediktsson segir að nýr spítali verði ekki byggður á meðan skuldastaða ríkissjóðs er jafn slæm og raun ber vitni. 25. september 2014 11:48 Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira
Spítalinn verður ekki byggður nema annað verði skorið niður Bjarni Benediktsson segir að nýr spítali verði ekki byggður á meðan skuldastaða ríkissjóðs er jafn slæm og raun ber vitni. 25. september 2014 11:48