Algjör bjartsýni að mótvægisaðgerðir skili sér Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. september 2014 19:57 Landssamband eldri borgara vill að hafist verði handa við að byggja nýtt sjúkrahús. Vísir/Pjetur
Kjaramálanefnd Landssamband eldri borgara hefur sent frá sér ályktun vegna fjárlagafrumvarpsins. Í ályktuninni er því mótmælt að virðisaukaskattur verði hækkaður úr 7% í 12% þar sem það sé „algjör bjartsýni að mótvægisaðgerðir muni skila sér.“ Hækkunum á lyfjum er einnig mótmælt, „ekki síst þar sem við berum hæsta virðisaukaskatt á lyf sem finnst í samanburðarlöndum.“ Þá segir jafnframt í ályktuninni að umræðan um Landspítalann sé orðin „gatslitin.“ Komi sé tími til að hefjast handa við að byggja nýtt sjúkrahús þar sem tugir milljóna hafi nú þegar farið í að gera breytingar á til dæmis deiliskipulagi og teikningum. Ályktunina í heild má sjá hér að neðan.Ályktun Kjaramálanefndar LEB 25. sept. 2014Kjaramálanefnd LEB hefur fjallað um nýgerð fjárlög og áhrif þeirra á stöðu eldri borgara. Fyrst ber að nefna aðför að matarverði sem þar er lögð til. Það er algjör bjartsýni að mótvægisaðgerðir muni skila sér. Fyrir því er margra áratugareynsla sem gleymist ekki. Því hafnar Kjaranefnd LEB allri umræðu um að hækka matarskattinn frá 7% í 12% og síðar 14% eins og einn ráðherrann tilkynnti í eldhúsdagsumræðum.Aðrar hækkanir sem boðaðar hafa verið eru hækkanir á lyfjum og því greiðsluþaki sem þar er. Því er alfarið hafnað ekki síst þar sem við berum hæsta virðisaukaskatt á lyf sem finnst í samanburðarlöndum. Víða er enginn virðisaukaskattur á lyf eða þá mjög lágur.Í frumvarpinu er ekki að finna neinar úrbætur fyrir fólk sem er eingöngu á TR- bótum en þar hefur orðið gliðnun árum saman og nú á þessu ári um nokkur %.Hækkun bóta um næstu áramót nær ekki að vinna á þessari þróun þannig að fólk sem er á lægstu bótunum er almennt illa statt fjárhagslega.Langvarandi umræða um Landspítalann og hvort eigi að byggja eða fresta er orðin gatslitin. Umræðan um að aldraðir teppi svo og svo mörg rúm eða fylli ganga er ómakleg þar sem hvert þjóðfélag er upplýst um að öldruðum fjölgar og lífaldur lengist og því fylgja innlagnir á sjúkrahús. Umræðan sem líka fjallar um sífellt neyðarástand hefur slæm heilsufarsleg áhrif á eldri borgara og er mál að linni. Kostnaður við að gera út hverja nefndina á fætur annarri og breytingar á teikningum og deiliskipulagi kostar orðið tugi milljóna. Þeim peningum hefði verið betur varið í alvöru þarfagreiningu í upphafi. Því skorum við á stjórnvöld að vinna hratt að uppbyggingu nýs sjúkrahúss.Eldra fólk vill búa við öryggi.Í okkar velferðarsamfélagi hefur öryggi fólks verið skert.Kjaramálanefnd LEB.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira