Taka þarf kynferðisbrotamál gegn börnum föstum tökum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. september 2014 08:18 Frá málþinginu á Hilton. vísir/ernir
Nauðsynlegt er að efla samstarf á milli barnaverndarstarfsmanna, lögreglu, dómstóla og allra þeirra sem koma að málum barna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Skýra þarf hlutverk hvers aðila fyrir sig svo hagsmunir barnsins séu ávallt hafðir að leiðarljósi. Þetta er á meðal þess sem fram kom í máli Anni Haugen, félagsráðgjafa og lektor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands á Barnaverndarþingi sem haldið var á Hilton í gær. Þá sagði hún að einblína þyrfti á sjónarmið barnsins og að undirstrika þyrfti mikilvægi þess að taka kynferðisofbeldismál gegn börnum föstum tökum. Hrefna Friðriksdóttir, dósent í fjölskyldu og erfðarétti við lagadeild Háskóla Íslands, kynnti fræðsluefni um málsmeðferð réttarkerfisins í málum um kynferðisbrot gegn börnum sem kemur til með að líta dagsins ljós á næstu vikum. Vitundarvakning í samvinnu við RÁS er nú að leggja lokahönd á fræðsluefni um kynferðislegt andlegt og líkamlegt ofbeldi en efnið var kynnt á málþinginu í gær. Markmið efnisins er að greina meginreglur samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, Lanzarote samningsins og leiðbeininga um barnvænlega réttarvörslu og draga fram þau atriði sem ber að hafa að leiðarljósi við meðferð réttarkerfisins á málum um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Barnaverndarþing hófst í gær og lýkur í dag en þetta er í fyrsta sinn sem slík ráðstefna er haldin hér á landi. Barnaverndarstofa stendur fyrir málþinginu undir yfirskriftinni „Réttur til verndar, virkni og velferðar“ og vísar til barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem lögfestur var hér á landi á síðasta ári. Ráðstefnan er öllum opin og hefur að markmiði að leiða saman fagstéttir og aðra sem tengjast barnavernd í víðum skilningi.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira