Berjast gegn kynferðisbrotum gegn börnum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. september 2014 10:46 "Þegar við förum að vanda okkur meira og ná árangri þá förum við að finna þessi mál fyrr,“ segir Geir Bjarnason forvarnarfulltrúi. vísir/pjetur
Blátt áfram og Hafnarfjarðarbær hafa undanfarin fjögur ár unnið að því að auka forvarnir og vitund fólks á kynferðislegu ofbeldi gegn börnum og unglingum. Rúmlega 700 starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar hafa sótt námskeið á þeirra vegum, en námskeiðið hefur meðal annars það að markmiði að gera starfsmenn hæfari í að greina einkenni kynferðislegs ofbeldis. Samstarfssamningur á milli bæjarins og Blátt áfram verður undirritaður í dag, fimmta árið í röð. Forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar segir verkefnið hafa gengið einstaklega vel en nauðsynlegt sé að halda því áfram. Um langhlaup sé að ræða og mikilvægt sé að dýpka þekkingu foreldra og einstaklinga sem starfa með börnum og unglingum. „Þegar við förum að vanda okkur meira og ná árangri þá förum við að finna þessi mál fyrr. Með þessu er hægt að koma í veg fyrir að þau verði eins erfið og þau kannski voru í gamla daga. Fagfólki er kennt að búa til öryggisnet í kringum börnin og tryggja að allir verkferlar séu eins skýrir og hægt er,“ segir Geir Bjarnason, forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. Íslenskar rannsóknir á verkefninu sýna að þekking og viðhorf þátttakenda á ýmsu er viðkemur kynferðislegu ofbeldi eykst og breytist í kjölfar þess að hafa hlotið þjálfun. Þátttakendur telja einnig líklegt að þeir muni í framtíðinni grípa til fleiri forvarnaraðgerða til verndar börnum gegn kynferðislegu ofbeldi en þeir gerðu áður. Geir segir mikilvægt að opna umræðu um málið. „Tilkynningum hefur ekki fækkað, en það er ekkert endilega fylgni þarna á milli. Umræðan í þjóðfélaginu er það sem veldur því hvort mikið sé um tilkynningar eða ekki og erum því að vonast eftir opnari umræðu því við erum fyrst og fremst að hugsa um hag barnanna,“ segir Geir. Hafnarfjarðarbær er eina sveitarfélagið sem stendur sem býður starfsfólki sínu upp á slík námskeið, því að kostnaðarlausu. Um 1800 manns starfa í bænum öllum. Fjölskylduþjónustan í Hafnarfirði leggur til félagsráðgjafana til að kenna á námskeiðunum fyrir starfsmenn bæjarins. Samstarfssamningurinn verður endurnýjaður á Kaffi Pallettu klukkan þrjú í dag.Gleðin var heldur betur við völd við undirritun samningsins í dag. -Uppfært klukkan 15.47
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira