„Munaði litlu að ég kæmi með hræ til baka“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. september 2014 10:46 Smáhundinn Snældu má sjá á hér til hægri.
Husky-hundur réðst á smáhund á hundaþjálfunarnámskeiði í seinustu viku í hundaskólanum Gallerí Voff í Mosfellsbæ. Sigrún Guðlaugsdóttir, eigandi hundsins sem ráðist var á, sagði frá atvikinu á Facebook í gær. Tíkin hennar, Snælda, rifbeinsbrotnaði í árásinni auk þess sem húð rifnaði frá, svo loft komst þar undir. „Ég er búin að kæra eigandann fyrir að vera með hættulegan dýrbít og ég er búin að kæra hundaþjálfarann fyrir gáleysi þar sem dýr slasaðist í aðstæðum sem hún átti að hafa fulla stjórn,“ segir Sigrún í samtali við Vísi. Hún segir það hafa verið mikil mistök að treysta hundaþjálfaranum. Hundunum hafi verið sleppt lausum á fyrstu 10 mínútunum í fyrsta tímanum og segir Sigrún það gáleysislegt fyrirkomulag. Hundar séu gjarnan stressaðir í nýjum aðstæðum og hundaþjálfarinn hafi þarna ekki getað vitað hvernig þeir myndu bregðast við því að vera lausir þar sem hún þekkti ekki hundana og þeirra persónuleika. „Það munaði litlu að ég kæmi með hræ til baka en það hefði hæglega getað farið svo ef árásin hefði ekki verið stöðvuð,“ segir Sigrún.Fékk enga afsökunarbeiðni Hún segist vera mjög sár yfir því að eigandi Husky-hundsins hafi ekki stigið fram áður en hundunum var sleppt og sagt að hundurinn myndi ekki ráða við aðstæður. Eigandinn ætti að þekkja hundinn sinn betur. Sigrún segist hafa verið mjög reið við hundaeigandann eftir árásina og beðið hann um að fara út með hundinn sinn sem hann gerði ekki. Það hafi henni fundist mjög skrýtið. „Hann baðst ekki afsökunar eða athugaði með líðan hundsins okkar eða neitt slíkt. Hann hefur heldur ekkert haft samband eftir þetta og mér sárnar það. Það er eins og honum sé alveg sama.“ Eftir árásina bað hundaþjálfarinn Sigrúnu um að vera áfram á námskeiðinu sem hún gerði. „Ég var þarna í smástund í viðbót en fór svo. Snælda var náttúrulega í taugaáfalli og ég líka. Við fórum með hana á neyðarvaktina í Víðidal og það kemur í ljós að hún er slösuð. Það sást ekki mikið á henni, var ekki mikið blóð eða neitt slíkt, en hún var bólgin.“Snælda er öll að koma til en er þó mjög hrædd við aðra hunda.Mynd/FacebookBörn ekki leyfð í fyrsta tíma Sigrún hefur ýmislegt við fyrirkomulag hundaþjálfunarnámskeiðsins að athuga. Hún setur meðal annars spurningamerki við að blanda saman smáhundum og Husky-hundum á svona námskeiði. Hún viti einnig til þess að á öðrum hundanámskeiðum sé hundum ekki sleppt lausum fyrr en á miðju námskeiði og það sé þá gert mjög varfærnislega svo ekki fari illa Þar að auki hafi börn ekki mátt koma með í fyrsta tímann og veltir Sigrún því fyrir sér hvers vegna svo hafi verið. Ef til vill hafi hundaþjálfarann grunað að eitthvað slæmt gæti gerst. „Dóttir okkar var til dæmis heima og beið spennt eftir að Snælda kæmi heim úr fyrsta hundaþjálfunartímanum. Svo þegar árásin á sér stað var það eina sem ég gat hugsað um að ég kæmi með hræ heim til dóttur sinnar. Sigrún fékk námskeiðið endurgreitt á staðnum og útlagðan lækniskostnað nokkrum dögum síðar. Það sé þó engin sátt í því. „Ég er enn mjög sár og ósátt yfir þessu öllu, og kannski sérstaklega vegna þess að ég treysti hundaþjálfaranum sem á að vera fagmanneskja í þessu.“ Aðspurð segir Sigrún að Snælda sé öll að koma til. Beinbrot taki um 6 vikur að jafna sig og þá sé tíkin enn mikið bólgin. Hún sé því á verkjalyfjum og bólgueyðandi. Hún sé hins vegar afar hrædd núna við aðra hunda og hafi til dæmis orðið mjög hrædd þegar hún sá annan smáhund á taumi á Klambratúni í gær.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira