„Hundurinn minn er ekki hættulegur dýrbítur“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. september 2014 12:37 Stefán segir eiganda smáhundsins hafa verið mjög dónalega við sig. Vísir/AFP
Stefán Arnarson eigandi Husky-hundsins sem réðst á smáhund á hundaþjálfunarnámskeiði í seinustu viku segir hundinn ekki vera hættulegan dýrbít. „Ég er jafnvel að íhuga að kæra eiganda smáhundarins fyrir meiðyrði þar sem hún heldur því fram að ég eigi hættulegan dýrbít. Það er fjarri lagi,“ segir Stefán í samtali við Vísi. Stefán segir að hundurinn sinn hafi ekki ætlað að drepa litla hundinn. „Ef að hundurinn minn hefði ætlað að drepa smáhundinn og verið með einhverja grimmd þá hefði hann bitið strax. Hann gerði það hins vegar ekki heldur setti hann smáhundinn á milli framlappanna á sér og ýtti honum niður í jörðina að ég held þrisvar sinnum,“ segir Stefán. Hann segist ekki vita hvers vegna Husky-hundurinn hafi ráðist á smáhundinn. Stefán segist sjálfur eiga smáhund og að Husky-inn sé því vanur að vera í kringum litla hunda. Smáhundurinn á hundanámskeiðinu hafi hins vegar vælt mikið og það hafi ef til vill æst Husky-hundinn meira upp. „Ég var auðvitað í sjokki eins og aðrir þarna yfir þessum atburði. Tíkin mín var mjög róleg en svo þegar henni var sleppt æstist hún upp. Þegar hún ræðst á hinn hundinn tek ég hana auðvitað frá og skamma hana.“ Stefán segir að eigandi smáhundsins hafi verið mjög reið og dónaleg við sig.„Talaði við mig eins og þetta hafi verið viljandi gert“ „Hún sagði við mig að hún hafi séð það á hundinum mínum að hann myndi gera eitthvað af sér. Ég veit ekki alveg hvað hún meinti með því. Svo sagði hún að það væri ekki skrýtið að Husky væri alltaf í fjölmiðlum fyrir að drepa smáhunda. Hún talaði við mig alveg eins og þetta hafi verið viljandi gert en það var auðvitað ekki þannig. Ég bað hana ekki afsökunar af því hún var svo dónaleg.“ Aðspurður hvað hefði verið hægt að gera til að koma í veg fyrir árásina segir hann að ef til vill hefði verið hægt að lesa betur í aðstæður. „En svo eru þetta bara hundar og maður veit auðvitað aldrei hvað getur gerst. Hundaþjálfarinn sagði svo við mig að svona hefði aldrei gerst áður á námskeiði hjá henni,“ bætir hann við að lokum.
Tengdar fréttir „Munaði litlu að ég kæmi með hræ til baka“ Husky-hundur réðst á smáhund á hundaþjálfunarnámskeiði í seinustu viku. 26. september 2014 10:46 Mest lesið Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Innlent Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Innlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Veður Fleiri fréttir Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Sjá meira
„Munaði litlu að ég kæmi með hræ til baka“ Husky-hundur réðst á smáhund á hundaþjálfunarnámskeiði í seinustu viku. 26. september 2014 10:46