Tuttugu mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttinda áréttuð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2014 17:21 Frá Litla Hrauni. Vísir/GVA
Emil Freyr Júlíusson var í gær dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir ítrekuð fíkniefnabrot í Héraðsdómi Suðurlands. Hann þarf þó aðeins að sitja inni í þrjá mánuði haldi hann skilorði í þrjú ár. Þá var svipting ökurétta hans áréttuð. Emil var dæmdur fyrir að hafa í janúar síðastliðnum ekið bifreið undir áhrifum eiturlyfja auk þess að hafa ekki ökuréttindi. Þeim hafði hann áður verið sviptur sex sinnum. Þá fundust 0,34 g af amfetamíni á honum á skemmtistaðnum Hressó í Austurstræti í febrúar. Emil var einnig dæmdur fyrir að hafa stolið Xbox tölvufjarstýringu úr Elko í Skeifunni. Í dómnum kemur fram að ákærði hafi ungur að árum hafið brotaferil sinn og hafi hann verið óslitinn til loka árs 2010. Hefur hann fjórtán sinnum áður sætt refsingu þar af sjö sinnum vegna akstur undir áhrifum fíkniefna, sex sinnum vegna aksturs sviptur ökurétti og átta sinnum vegna auðgunarbrota. Var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi árið 2010 fyrir þjófnað, hylmingu, fjársvik, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot og fjórtán mánaða fangelsi árið 2012 þegar hann var fundinn sekur um innbrot í tvö hús og rán á munum að andvirði um 50 milljón króna. Verjandi Emils benti á að hann væri nú 26 ára gamall og virðist vera að ná góðum tökum á lífi sínu. Voru birt vottorð um lok meðferðar og meðmæli, annars vegar frá vinnuveitanda ákærða og hins vegar rekstraraðila áfangaheimilis þess sem Emil hefur á frá því í maí 2014. Kemur meðal annars fram í umræddum meðmælabréfum að hann sýni gott fordæmi í vinnu, sé öðrum heimilismönnum á áfangaheimilinu fyrirmynd og sé sannarlega að vinna í sínu lífi með trúnaðarmanni og með hjálp AA samtakanna. Hann sýni ábyrgð og staðfestu og sé með mikið jafnaðargeð. Þá sé hann duglegur í vinnu, mæti stundvíslega og sé þægilegur í viðmóti við aðra starfsmenn. Þótti því við hæfi að skilorðsbinda sautján mánuði af tuttugu. Dóminn í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira