Segir að fjölskylduvænt samfélag kosti en dýrt að fæðingum fækki Stefán Árni Pálsson skrifar 11. september 2014 14:08 Eygló Harðardóttir skipar starfshóp um framtíðarskipan fæðingarorlofs. visir/vilhelm/getty
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp um framtíðarskipan fæðingarorlofs en þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu. Eitt af umfjöllunarefnum hópsins verður hvort mikilvægara sé að lengja fæðingarorlofið eða hækka hámarksgreiðslur til foreldra þannig að markmiðum laga verði best náð. Fram kemur í tilkynningunni að markmið laga um fæðingar- og foreldraorlof sé að tryggja barni samvistir við báða foreldra sína og auðvelda jafnframt barnafólki að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. „Árið 2000 var ákveðið með lögum að veita feðrum sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs til jafns við mæður. Fæðingarorlofsréttur foreldra er þrískiptur þar sem foreldrar eiga hvort um sig sjálfstæðan rétt til þriggja mánaða orlofs sem þau geta ekki framselt en þrír mánuðir eru sameiginlegir. Eftir að karlar fengu sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs fjölgaði þeim ár frá ári sem nýttu sér hann þar til orlofstaka þeirra náði hámarki árið 2007 og var að meðaltali 102 dagar,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.Dregið hefur úr þátttöku karla í fæðingarorlofi Í kjölfar efnahagshrunsins hafi hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi verið lækkaðar. Nú nemi hámarksgreiðslan 370.000 kr. á mánuði og skal aldrei vera hærri en nemur 80% af heildarlaunum. Taka mæðra á fæðingarorlofi hefur lítið breyst á liðnum árum en verulega hefur dregið úr þátttöku karla í fæðingarorlofi sem árið 2013 nam að meðaltali um 74 dögum. Eygló Harðardóttir segir mikilvægt að taka ákvörðun um framtíðarskipan fæðingarorlofsmála. Fæðingarorlof á Íslandi sé styttra en annars staðar á Norðurlöndunum og jafnframt sé hér lengsta bilið sem foreldrar þurfa að brúa frá þeim tíma sem fæðingarorlofi lýkur þar til leikskólaganga hefst. Forsenda breytinga sé hins vegar að sem mest sátt og samstaða sé um leiðir til að ná sem best markmiðum laga um fæðingar- og foreldraorlof. „Mikilvæg forsenda breytinga á fæðingarorlofinu á sínum tíma var aðkoma aðila vinnumarkaðarins og sátt þeirra um leiðir. Þessi sátt virðist ekki fyrir hendi núna. Þar sem ýmist heyrist að lækka þurfi tryggingagjaldið sem takmarkar svigrúm til breytinga, eða að lengja beri fæðingarorlofið eða að hækka greiðslur áður en orlofið er lengt,“ segir Eygló. Hún segir einnig að fjölskylduvænt samfélag kosti en það sé líka dýrt að fæðingum fækki og þjóðin eldist hraðar. „Það kostar líka að bakslag komi í jafnréttisbaráttuna og foreldrar séu tilneyddir að velja á milli vinnumarkaðarins og barneigna. Því mun ég á næstu dögum óska eftir tilnefningum frá aðilum vinnumarkaðarins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga í formlegan starfshóp um framtíðarskipan fæðingarorlofs hér á landi. Aðeins saman getum við búið íslenskum fjölskyldum besta mögulega umhverfi og mótað framtíðarskipan fæðingarorlofs hér á landi.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira