Innlent

Harma ákvörðun Landsbankans um lokun útibús í Sandgerði

Atli Ísleifsson skrifar
Ólafur Þór Ólafsson, forseta bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar, hitti Steinþór Pálsson, bankastjóra Landsbankans, fyrr í dag.
Ólafur Þór Ólafsson, forseta bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar, hitti Steinþór Pálsson, bankastjóra Landsbankans, fyrr í dag. Mynd/Sandgerðisbær
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar harmar ákvörðun Landsbankans um lokun útibús bankans í Sandgerði.

„Landsbankinn ætti að hafa burði til að starfrækja bankaútibú í rúmlega 1600 manna samfélagi og bjóða bæði íbúum og fyrirtækjum þjónustu í nærsamfélaginu. Þannig stæði banki í ríkiseigu undir samfélagslegum skyldum og ábyrgð,“ segir í yfirlýsingu bæjarstjórnarinnar.

Á fundi bæjaryfirvalda með Steinþóri Pálssyni bankastjóra fyrr í dag var skorað á hann og bankaráð Landsbankans að endurskoða tafarlaust ákvörðun um lokun útibúsins og falla frá þeim áætlunum.

„Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar mun gera það sem í hennar valdi stendur til að reyna að tryggja Sandgerðingum bankaþjónustu í heimabyggð,“ segir í yfirlýsingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×