Telja að heimilisofbeldi sé ekki litið nægilega alvarlegum augum Stefán Árni Pálsson skrifar 1. september 2014 13:02 visir/pjetur/gva
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, og Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa ákveðið að leggja fram frumvarp þegar þingið kemur saman um það hvernig eigi að taka á þeim mikla vanda sem heimilisofbeldi er. Þetta kemur fram í tilkynningu sem þingmennirnir hafa sent frá sér. Það kemur fram að á síðasta ári voru 355 heimilisofbeldismál tilkynnt til lögreglu höfuðborgarsvæðisins, eða um eitt á dag. Talið er að þetta sé aðeins lítill hluti þeirra brota sem eiga sér stað. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir breytingu á almennum hegningarlögum þar sem ný ákvæði um heimilisofbeldi koma inn. Þá mun frumvarpið fela í sér það nýmæli að lögregla fær heimild til að kæra brot gegn nálgunarbanni, en í núverandi er það einungis þolandi sem kært getur slík brot. „Samkvæmt úttekt embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum er ljóst að fá heimilisofbeldismál hljóta meðferð innan réttarkerfisins. Þá er rannsókn slíkra mál ábótavant. Til dæmis hafa úrræði laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili ekki verið verið nýtt sem skyldi og einnig er skortur á stuðningi fyrir þolendur og eftir atvikum gerendur heimilisofbeldis,“ segir í tilkynningunni frá þingmönnunum. Þar segir einnig líklega sé heimilisofbeldi ekki litið nægilega alvarlegum augum í samfélaginu og þörf sé viðhorfsbreytingu. „Ríkt tilefni er til að skerpa á afstöðu löggjafans til heimilisofbeldis í almennum hegningarlögum og er tilgangur frumvarpsins að koma til móts við þau viðhorf.“
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Sjá meira