Vinnumálastofnun lokar á Húsavík: Mikil óánægja með ákvörðunina Stefán Árni Pálsson skrifar 1. september 2014 15:52 Húsavík. visir/vilhelm
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar hafa sent frá sér ályktun vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar um að loka þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Húsavík þann 1. desember nk. Starfsmanni Vinnumálastofnunar var sagt upp í dag en hann hefur verið í 40% starfi. Í tilkynningu frá Framsýn kemur fram að mikil óánægja sé með boðaða lokun og munu fulltrúar Framsýnar funda með sveitarstjóra Norðurþings á morgun auk þess sem óskað verður eftir fundi með Félags- og húsnæðismálaráðherra vegna málsins. Hér að neðan má lesa ályktun Framsýnar í heild sinni;Um lokun Vinnumálastofnunar á Húsavík Framsýn, stéttarfélag krefst þess að Vinnumálastofnun dragi þegar í stað til baka boðaða lokun á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Húsavík frá og með 1. desember 2014. Þá vekur furðu að stofnunin skyldi ekki sjá ástæðu til að eiga samráð við stéttarfélögin og sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum um málið áður en þessi vanhugsaða ákvörðun var tekin.Greinagerð:Vinnumálastofnun hefur í tilkynningu til Framsýnar ákveðið að leggja niður starfsemi Vinnumálastofnunar á Húsavík. Starfsmanni sem gegnt hefur 40% starfi á vegum stofnunarinnar á Húsavík hefur verið sagt upp störfum. Áður var um fullt stöðugildi að ræða.Þjónusta Vinnumálastofnunar er gríðarlega mikilvæg í Þingeyjarsýslum. Stofnunin heldur utan um skráð atvinnuleysi á svæðinu og er ætlað að vinna að úrræðum fyrir atvinnuleitendur í samráði við þá. Jafnframt gegnir stofnunin mikilvægu hlutverki í atvinnumálum fatlaðra auk þess að þjónusta verðandi foreldra í gegnum fæðingarorlofssjóð.Það vekur furðu og reyndar undrun að á sama tíma og stjórnvöld hreykja sér að flutningi Fiskistofu til Akureyrar með það að markmiði að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni skuli sömu stjórnvöld vinna markvisst að því að leggja niður opinber störf á öðrum stöðum á landsbyggðinni. Þetta er skrýtin stjórnsýsla svo ekki sé meira sagt og kallar á harða gagnrýni.Soffía Gísladóttir forstöðumaður VMST á Norðurlandi eystra átti fund með formanni Framsýnar í dag þar sem farið farið yfir ákvörðun stofnunarinnar að loka á Húsavík. Við það tækifæri kom formaður Framsýnarskoðunum félagsins á framfæri við stofnunina.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira