Vann 53 milljónir en kláraði að elda súpuna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. september 2014 14:12 Báðum vinningshöfunum hefur verið boðin fjármálaráðgjöf.
Búið er að ná í báða vinningshafana frá því á laugardagskvöld, en báðir vinningsmiðarnir voru keyptir á lotto.is og því hæg heimatökin að hafa uppi á eigendum þeirra. Potturinn var risavaxinn og hvor um sig vann rúmlega 53 milljónir. Annar vinningshafinn er ungur maður búsettur í Reykjavík ásamt konu og börnum. Hann sagði það mjög skrýtna tilfinningu að vinna svona háa upphæð í Lottóinu en öryggistilfinningin væri virkilega góð. Þau hjónin náðu sér bæði í miða, hann á netinu og hún á sölustað. Ekkert kom á miðann hennar en hann uppgötvaði að tölur kvöldsins hefðu komið á miðann sem keyptur var á netinu. Hann hélt ró sinni, eldaði súpu og eftir að fjölskyldan hafði lokið við að snæða bað hann konuna sína að koma með sér að tölvunni. Frúin átti bágt með að trúa þessu en til að halda upp á þetta, þá fór hún og keypti sér nýja skó. Hinn vinningshafinn býr úti á landi og var ekki búinn að skoða miðann sinn þegar starfsmenn Lottó hringdu í hann. Því komu tíðindin honum skemmtilega á óvart. Báðum vinningshöfunum hefur verið boðin fjármálaráðgjöf en hún stendur öllum til boða sem vinna svona glæsilega Lottóvinninga að því er fram kemur á heimasíðu Lottó.
Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Erlent Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Innlent Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Erlent Noem rekin Erlent Fleiri fréttir Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Kýldi í rúðu leigubifreiðar og kastaði í hana flösku Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Eyjólfur færir klukkuna aftur Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum „Margir staðir og margir sakborningar“ Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Viðreisn opinberar listann í Kópavogi Tveir í varðhaldi vegna hópárásar í miðbæ Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þau skipa lista Viðreisnar í Reykjavík Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Íslendingar á flótta, nýr listi og fegrunaraðgerðir karla Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni „Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Ákvarðanir teknar af heift en ekki skynsemi Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Sjá meira