Ráðuneytið segir fyrirspurn ESA hafa komið á óvart Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. september 2014 18:46 Ragnheiður Elín Árnadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. Vísir/GVA
Eins og Vísir greindi frá í morgun hefur ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, sent íslenskum stjórnvöldum erindi þar sem útskýringa er krafist á því hvers vegna ekki sé búið að innleiða Evrópulöggjöf um raforku hér á landi. Sjö ár eru síðan stjórnvöld áttu að innleiða löggjöfina. Erindi ESA kemur í kjölfar kvörtunar sem stofnuninni barst þann 8. ágúst síðastliðinn. Í kjölfarið sendi ESA bréf til iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins þar sem ráðuneytið er krafið svara um ýmis atriði er varða innleiðingu Evrópulöggjafar í orkumálum áður en formleg athugun verður hafin. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið sendi í kvöld frá sér tilkynningu þar sem segir að á árunum 2008 til 2010 hafi ráðuneytið átt í bréflegum samskiptum við ESA vegna innleiðingar á umræddri tilskipun, númer 2003/54/EB. Síðasta bréf þess efnis fór frá ráðuneytinu til ESA þann 7. maí 2010. Í framhaldi af kvörtuninni sem barst ráðuneytinu þann 8. ágúst sendi ESA fyrirspurn til ráðuneytisins liðlega þremur vikum síðar, þann 27. sama mánaðar, um hvernig hafi verið staðið að innleiðingu á nokkrum þáttum tilskipunarinnar. Í tilkynningu segir að ráðuneytinu hafi borist bréf fyrir tveimur dögum og er nú þegar hafin vinna við að svara því. „Fyrirspurn ESA um innleiðingu tilskipunarinnar, nú rúmum fjórum árum eftir síðustu bréfaskipti ESA og ráðuneytisins, kemur á óvart en að sjálfsögðu mun ráðuneytið fara vel í gegnum þau atriði sem koma fram í fyrirspurninni og leggja að nýju mat á hvort hugsanlega eigi eftir að innleiða einhverja þætti í umræddri tilskipun,“ segir í tilkynningunni en svarfrestur er til 15. nóvember, „og verður ESA svarað fyrir þann tíma.“
Tengdar fréttir Hafa trassað að innleiða Evrópulöggjöf í rúm sjö ár ESA hefur verið send kvörtun vegna meintra vanefnda íslenskra stjórnvalda á EES-skuldbindingum. ESA hefur sent iðnaðarráðuneytinu bréf og óskar svara við því hvers vegna orkulöggjöf hefur ekki verið innleidd. 4. september 2014 07:00 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Hafa trassað að innleiða Evrópulöggjöf í rúm sjö ár ESA hefur verið send kvörtun vegna meintra vanefnda íslenskra stjórnvalda á EES-skuldbindingum. ESA hefur sent iðnaðarráðuneytinu bréf og óskar svara við því hvers vegna orkulöggjöf hefur ekki verið innleidd. 4. september 2014 07:00