Féll 20 metra úr bjargi í Vestmannaeyjum Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. september 2014 20:02 Heimaey Vísir/ÓSKAR
Karlmaður á sextugsaldri var fluttur með þyrlu á Landspítalann í Reykjavík eftir að hann hrapaði úr bjargi í Vestmannaeyjum í dag. Maðurinn hafði verið ásamt öðrum við súluveiðar í Súlnaskeri, þverhníptum klettadrangi um níu kílómetra sunnan Heimaeyjar. Lögreglan í Vestmannaeyjum segir að maðurinn, sem er heimamaður og þaulvanur, hafi verið að klífa niður úr bjarginu í aðdraganda slyssins. Súlnasker er um 80 metra hátt en maðurinn féll um 15 til 20 metra, skall utan í klettana og lenti í sjónum. Samferðamenn hans drógu manninn upp í bátinn og sigldu með hann til Heimaeyjar. Maðurinn var með meðvitund þegar honum var komið undir læknishendur og ekki talinn alvarlega slasaður. Lögreglan telur að maðurinn hafi verið einn að veiðum í klettunum þegar hann hrapaði. Því hafi hann ekki verið með öryggislínu en að sögn lögreglunnar tíðkast ekki að menn reiði sig á slíkan búnað á þessum stað í Súlnaskeri.RÚV greindi fyrst frá.
Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Innlent Noem rekin Erlent Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Erlent Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Eyjólfur færir klukkuna aftur Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum „Margir staðir og margir sakborningar“ Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Viðreisn opinberar listann í Kópavogi Tveir í varðhaldi vegna hópárásar í miðbæ Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þau skipa lista Viðreisnar í Reykjavík Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Íslendingar á flótta, nýr listi og fegrunaraðgerðir karla Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni „Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Ákvarðanir teknar af heift en ekki skynsemi Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ ASÍ segir niðurskurðaraðgerðir ekki koma til greina Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Sjá meira