Réðst á konu fyrir utan Bar 11: „Sucker punched me in the center of my face“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. ágúst 2014 15:13 Árásin varð utan við Bar 11 aðfaranótt laugardags. Mynd/Heimasíða Bar 11 „
Ég er mjög niðurdregin enda hef ég notið síðustu tveggja mánaða á Íslandi og vil ekki að þetta atvik eyðileggi minningar mínar héðan,“ segir myndlistarkonan Rosalie Smith sem varð fyrir árás á göngu ásamt vinkonu sinni í miðbæð Reykjavíkur aðfaranótt laugardag. Rosalie, sem er listakona frá Bandaríkjunum, var á gangi ásamt vinkonu sinni á Hverfisgötu við Bar 11 um klukkan 4:45 um nóttina þegar fullur karlmaður vatt sér upp að þeim. Segir hún manninn hafa óskað eftir því, bæði á íslensku og ensku, að þær stunduðu kynmök með sér. „Áreitni sem þessi er því miður alltof algeng í borgum heimsins. Vinkona mín reyndi að fá hann til þess að yfirgefa svæðið en leiddist þófið og sló hann utanundir,“ skrifar Rosalie á Facebook. Í kjölfarið hafi maðurinn slegið vinkonu hennar svo fast í andlitið að augnlinsur hennar hafi fallið úr augum hennar. „Ég komst í svo mikið uppnám að ég svaraði í sömu mynt. Ég vildi að ég hefði ekki svarað með ofbeldi,“ segir Rosalie. Maðurinn hafi svo svarað á móti að honum væri nákvæmlega sama þótt hún væri kona. „Fávitinn sló mig í mitt andlitið og úr varð glóðurauga, skurður og líklega brotið nef,“ segir Rosalie. Hún hafi fallið til jarðar um leið og lýsir því þannig að blóð hafi fossað úr nefi sínu. Það sem eftir lifi nætur sé í móðu. Sem betur fer hafi hún verið með vinkonu sinni, Lindu, sem hafi farið með hana á slysadeild og kallað til lögreglu. Rosalie segir árásina hafa vakið hana til umhugsunar um landið sem sé oft kallað „besta land í heimi fyrir konur“. Þrátt fyrir að hér eigi ofbeldi að vera af skornum skammti lendi hún í því að vera barin í klessu úti á götu. Vonast hún til að að í það minnsta verði saga hennar til þess að konur átti sig á þeirri hættu sem sé fyrir hendi á götum úti. Þá greinir hún frá því að hún hafi kært málið til lögreglu sem leiti nú árásarmannsins og vitna.Ekki náðist í Rosalie við vinnslu fréttarinnar. Post by Rosalie Grey Lamb Smith.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira