Tekist á um matarskattinn í ríkisstjórninni Heimir Már Pétursson skrifar 20. ágúst 2014 16:44 Karl leggst gegn hækkun á virðisaukaskatti á matvæli. Vísir/Vilhelm
Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins leggst gegn hækkun virðisaukaskatts á matvæli við einföldun virðisaukaskattskerfisins og vill þess í stað fækka undanþágum með því t.d. að leggja skattinn á ferðaþjónustuna. Í drögum að fjárlagafrumvarpi sem kynnt voru í þingflokkum stjórnarflokkanna í gær er gert ráð fyrir breytingum á virðisaukaskattskerfinu þannig að skatturinn færi úr 7 prósentum á matvæli upp í tíu til fimmtán prósent. „En ég er mjög andvígur þessum hugmyndum. Ég tel að menn séu að fara algerlega ranga leið með þessu og senda röng skilaboð út í þjóðfélagið. Það liggur fyrir að stór hluti af ráðstöfunartekjum þeirra tekjulægstu fer í matvöru í dag og þeir þurfa síst á því að halda að við séum að stuðla að því að matvara hækki í verði,“ segir Karl. Hann segist hins vegar styðja að virðisaukaskattskerfið verði einfaldað og flestir hlutir fari í eitt skattþrep. „Sem þýðir að ákveðnir hlutir hækka en aðrir lækka. Það er eðlilegt. En matvaran á að vera undanskilin. Þetta er nú einu sinni neysluvara sem við þurfum öll að kaupa og við getum ekki verið án. Við eigum ekki að hrófla við matarverði og stuðla að hækkun á vísitölu neysluverðs með því,“ segir Karl. Leggja beri virðisaukaskatt á ýmislegt sem nú sé undanþegið skattinum eins og ferðaþjónustuna. En núverandi ríkisstjórn féll frá áformum fyrri ríkisstjórnar um að leggja virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna. „Það er mjög óeðlilegt á meðan fólk er að borga 7 prósenta virðisaukaskatt á matvöru,“ segir Karl.Fara leið fyrri ríkisstjórnar sem núverandi ríkisstjórn hætti við að fara með virðisaukaskatti á gistingu og svo framvegis?„Já, ég tel að það eigi að koma inn aftur,“ segir Karl Garðarsson.
Tengdar fréttir Skattalækkanir í nýju fjárlagafrumvarpi Formaður þingflokks Sjálfstæðismanna segir innanríkisráðherra njóta óskoraðs trausts þingflokksins. Lekamálið ráðherra og flokknum öllum erfitt. 20. ágúst 2014 13:47 Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Sjá meira
Skattalækkanir í nýju fjárlagafrumvarpi Formaður þingflokks Sjálfstæðismanna segir innanríkisráðherra njóta óskoraðs trausts þingflokksins. Lekamálið ráðherra og flokknum öllum erfitt. 20. ágúst 2014 13:47