Stofna fagráð til að efla lestrarfærni Stefán Ó. Jónsson skrifar 21. ágúst 2014 09:42 VÍSIR/GETTY
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum 20. ágúst að setja á fót fagráð um leiðir til að efla lestrarfærni og lesskilning barna og ungmenna í skólum borgarinnar. Ráðið, sem skipað verður fræðimönnum og fagfólki, mun taka mið af því markmiði í samstarfssáttmála nýs meirihluta borgarstjórnar, að allur þorri barna í Reykjavík geti lesið sér til gagns á fyrstu árum grunnskólans. Hlutverk ráðsins verður að móta tillögur um hvernig megi efla lestrarfærni og lesskilning meðal reykvískra grunnskólanemenda, sem og málþroska, hljóðkerfisvitund og læsi barna í leikskólum borgarinnar, er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Jafnframt á það að endurskoða fyrirkomulag lesskimunar í skólum borgarinnar og leggja fram tillögur til úrbóta. Lögð verði áhersla á aðgerðir til að styðja við bakið á þeim nemendum sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda í lestrarnáminu. Þá er fagráðinu ætlað að benda á árangursríkar aðferðir í lestrarkennslu og námi, sem studdar eru fræðilegum rökum. Formaður ráðsins verður dr. Freyja Birgisdóttir, dósent við menntavísindasvið HÍ.Fagráðið á að skila tillögum sínum fyrir 1. febrúar 2015.Í fundargerð skóla- og frístundaráðs kemur meðal annars fram að lesskimunin Læsi hafi verið lögð fyrir nemendur í 2. bekkjum í grunnskólum Reykjavíkur í apríl ár hvert frá árinu 2002. Besti árangur sem hefur náðst í skimuninni var vorið 2011 en þá gátu 71 prósent þeirra sem tóku þátt lesið sér til gagns samkvæmt þeim viðmiðum sem sett hafa verið. Vorið 2013 var hlutfallið 63 prósent en vorið 2014 kom í ljós að 66 prósent nemenda í 2. bekk virtust geta lesið sér til gagns. Niðurstöður PISA-rannsóknarinnar sem gerð var vorið 2012 bendi einnig til þess að þörf sé á samstilltu átaki fræðsluyfirvalda og skóla við að endurmeta vinnubrögð og áherslur varðandi lesskilning, náttúrulæsi og stærðfræðilæsi.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira