Jarðeðlisfræðingur við HÍ: Næsta Heklugos gæti grandað flugvél Kjartan Atli Kjartansson skrifar 22. ágúst 2014 15:45 Páll vill breyta flugleiðum til að koma í veg fyrir flugslys. „
Það eru óásættanlega miklar líkur á að næsta Heklugos geti grandað flugvél,“ segir Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Páll telur að flugleiðir yfir Heklu séu of hættulegar og hvetur flugyfirvöld til að breyta flugleiðum. Hann sendi samgöngustofu bréf og í því rekur hann ástæður fyrir því af hverju það ætti ekki að fljúga beint yfir Heklu. Í bréfinu rekur Páll ástæður þess hvers vegna flug beint yfir Heklu sé hættulegt og segir: „Þegar allt þetta er skoðað í samhengi verður að telja marktækar líkur á því að næsta gosbyrjun í Heklu geti valdið flugslysi.“Samspil magra þátta Í samtali við Vísi segir Páll að samspil margra þátta geri það að verkum að flugleið beint yfir Heklu sé óheppileg og í raun hættuleg. „Já, þetta er samsafn af ástæðum. Hekla er nú tilbúin í gos og gosin í Heklu byrja með látum. Gosstrókurinn í Heklugosum er hár og rís hratt. Þessi stutti aðdragandi gerir það að verkum að það gæti orðið erfitt fyrir yfirvöld að bregðast við og beina flugvélum frá svæðinu,“ útskýrir hann og heldur áfram: „Við alla þessa áhættuþætti bætist við að þetta er vinsæl flugleið. Ég vildi bara vekja athygli á þessu máli, því nú er mikið talað um röskun á flugi vegna ólgunnar í Bárðarbungu. Hekla er ólík öðrum eldfjöllum og það eiga að gilda sérstakar reglur um flug yfir hana.“Nítján vélar flugu yfir Heklu í gærMálið er til umfjöllunnar á vefnum Alltumflug.is. Þar kemur fram að nítján flugvélar flugu beint yfir eldfjallið. Það var ein einkaþota, ein fraktflugvél og sautján farþegaþotur. Könnun vefsíðunnar náði yfir sólarhringstímabil frá miðnætti á miðvikudagskvöld til miðnættis á fimmtudagskvöld. Vélarnar sem flugu yfir Heklu á þessu tímabili voru allar frá erlendum flugfélögum, til dæmis Delta Air Lines, Lufthansa, SAS og Etihad Airways. Hér á meðfylgjandi mynd má sjá flugleið farþegaþotu sem flaug beint yfir Heklu klukkan 15:30 í dag. „Ef að flugleiðum yrði breytt lítillega, og vélarnar myndu fljúga kannski í tíu kílómetra fjarlægð frá Heklu myndi það gjörbreyta stöðunni. Þessi breyting kostar því ekki peninga. Þetta snýst bara um að breyta starfsvenjum flugstjóranna,“ segir Páll. Hann segir að ekki þurfi að hafa sömu áhyggjur af gosi í Bárðabungu. „Þar duga þessar venjulegur reglur sem menn hafa sett sér. Þegar dregur nær gosi þá er flugi bægt frá. Það verður nægur fyrirvari til þess,“ segir hann.Hætta á að grunlaus flugmaður geti flogið inn í gosstrókinn Í bréfinu sem Páll sendi Samgöngustofu fyrr í mánuðinum segir meðal annars:„Mælanlegur fyrirvari gosa er óvenju stuttu í Heklu, 23-79 mínútur samkvæmt reynslu frá gosum 1970, 1980, 1991 og 2000. Flest önnur eldfjöll hafa sýnt lengri fyrirvara. Gosið 2000 er eina gos Heklu þar sem gefin var út aðvörun áður en gosið kom upp, enda var fyrirvarinn lengstur þá, 79 mínútur. Það er ekki víst að hægt verði að gefa út viðvörun á undan næsta gosi. Við þetta bætist að byrjunarfasi Heklugosa er venjulega öflugur og gosstrókurinn rís hratt. Almennar reglur og vinnulag í sambandi við flug og eldgos duga því tæpast hér, þótt þær geti verið gagnlegar við önnur eldfjöll. Hætta er á að grunlaus flugmaður geti flogið inn í gosstrókinn með skelfilegum afleiðingum. Ég minni á að litlu munaði að svo færi í gossbyrjun 17. ágúst 1980.“ Bréfið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.Þessi mynd er tekin af vefnum Flightradar24 klukkan 15:30 í dag. Þar sést farþegaþota fljúga beint yfir eldfjallið á leið til Keflavíkur.Hér er bréfið sem Páll sendi Samgöngustofu.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira