"Ég myndi sjá mjög eftir landinu" Hrund Þórsdóttir skrifar 22. ágúst 2014 20:00
Bærinn Keldunes í Kelduhverfi stendur afar lágt og í raun bara á framburði úr Jökulsá á Fjöllum. Haftið milli árinnar og Skjálftavatns hefur verið styrkt með grjóti en komi stórt flóð mega slíkar varnir sín lítils. Á bænum eru 450 kindur og ferðaþjónusta auk veiðileyfasölu og hefur Bára Siguróladóttir búið þar í 40 ár. „Við bíðum bara eins og allir hinir og sjáum til hvort eitthvað gerist. Það er ekkert hægt að undirbúa sig undir eitthvað sem maður veit ekki hvort verður,“ segir Bára. Vegna hugsanlegs flóðs er búið að smala Vestursandinn, um mánuði fyrr en í venjulegu ári. „Kindurnar eru komnar heim í tún og við vitum ekki hvort við þurfum að fara með þær lengra. Á meðan allt er í biðstöðu viljum við bara hafa þær nær okkur.“ Litlaá rennur rétt hjá bænum og þar veiðist meðal annars vænn urriði. Ábúendur á bænum selja veiðileyfi en ef flóð kæmi yfir svæðið gæti farið illa fyrir veiðinni, bæði í ánni og í Skjálftavatni. Sveitarstjóri Norðurþings tilkynnti ábúendum að ef til hamfara kæmi ætti fólk að keyra til Húsavíkur og tilkynna sig þar. „Aðrir hafa ekki hringt nema bara fjarskyldir ættingjar sem sem eru miklu stressaðri yfir þessu en við held ég,“ segir Bára. „Og svo fólk sem býr í Reykjavík en á hér sumarbústaði og jarðir.“ Öxarfjörður er það svæði sem mest myndi reyna á í flóði og fyrsti íbúafundurinn var haldinn í Lundi í gærkvöldi. „Mér finnst allt í lagi að fá einhverjar upplýsingar en mér finnst samt asnalegt að draga allt liðið úr Kelduhverfi austur fyrir Jökulsá ef það skyldi nú gerast eitthvað einmitt á þeim tíma.“ Óvissan er mikil en Bára kveðst þó áhyggjulaus, að mestu. „Þetta er orðið uppgróið land og ég myndi sjá mjög eftir landinu sem færi undir vatn, ef flóðið yrði eins stórt og möguleiki er sagður á.“
Tengdar fréttir Grannt fylgst með ferðum fólks við Jökulsárgljúfur Grannt er fylgst með ferðum fólks í nágrenni Jökulsárgljúfurs vegna hugsanlegra flóða en viðbragðsaðilar telja sig geta tryggt öryggi fólks á svæðinu. 21. ágúst 2014 21:15 Aðgerðir koma illa við ferðaþjónustuna Hræringarnar undir Bárðarbungu þegar haft mikil áhrif á samfélagið, meðal annars á ferðaþjónustu. Rauði krossinn er búinn undir hamfarir eins og aðrir viðbragðsaðilar. 20. ágúst 2014 18:30 Almannavarnir funduðu á Húsavík í dag Mörg hundruð manns vinna að undirbúningi fyrir hugsanlegar náttúruhamfarir ef Bárðarbunga gýs og ríkislögreglustjóri fundaði með viðbragðsaðilum á Húsavík í dag. 21. ágúst 2014 21:38 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira
Grannt fylgst með ferðum fólks við Jökulsárgljúfur Grannt er fylgst með ferðum fólks í nágrenni Jökulsárgljúfurs vegna hugsanlegra flóða en viðbragðsaðilar telja sig geta tryggt öryggi fólks á svæðinu. 21. ágúst 2014 21:15
Aðgerðir koma illa við ferðaþjónustuna Hræringarnar undir Bárðarbungu þegar haft mikil áhrif á samfélagið, meðal annars á ferðaþjónustu. Rauði krossinn er búinn undir hamfarir eins og aðrir viðbragðsaðilar. 20. ágúst 2014 18:30
Almannavarnir funduðu á Húsavík í dag Mörg hundruð manns vinna að undirbúningi fyrir hugsanlegar náttúruhamfarir ef Bárðarbunga gýs og ríkislögreglustjóri fundaði með viðbragðsaðilum á Húsavík í dag. 21. ágúst 2014 21:38