Skuldar ríkissjóði 17 milljarða króna vegna framkvæmda Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. ágúst 2014 18:37
Vegagerðin skuldar ríkissjóði 17 milljarða króna sem hefur safnast upp frá árinu 2008 þar sem markaðar tekjur stofnunarinnar, eins og bensíngjald, olíugjald og þungaskattur ökutækja, hafa ekki staðið undir útgjöldum til vegamála. Ríkisendurskoðun hefur gert athugasemd við fyrirkomulagið oftar en einu sinni. Stór hluti tekna Vegagerðarinnar kemur frá svokölluðum mörkuðum tekjustofnum sem eru gjöld eins og bensíngjald, olíugjald og þungaskattur. Þessi gjöld fara eftir sérstakri gjaldskrá og fela í sér breytilegar tekjur fyrir ríkissjóð. Gjaldskráin hefur ekki verið hækkuð nægilega mikið í gegnum árin og tekjur Vegagerðarinnar af þessum stofnum hafa ekki staðið undir framkvæmdum. Nú er svo komið að uppsafnaður halli vegna tekna af mörkuðum tekjustofnum nemur 17 milljörðum króna. Þetta eru peningar sem Vegagerðin skuldar ríkissjóði. Hreinn Haraldsson forstjóri Vegagerðarinnar staðfesti þetta í samtali við Stöð 2. Hann sagði að fjárhæðin væri uppsöfnuð frá árinu 2008. Hreinn sagði að Ríkisendurskoðun hefði nýlega gert athugasemdir við þetta fyrirkomulag í fjárlagagerðinni. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur Ríkisendurskoðun gert athugasemdir við fyrirkomulagið oftar en einu sinni. Skella skuldinni á fjármálaráðuneytið Hannes Már Sigurðsson fjármálastjóri Vegagerðarinnar sagði að fjármálaráðuneytið hefði túlkað fjárlögin þannig frá 2008 að Vegagerðin hefði ekki aðra tekjustofna en markaðar tekjur nema í undantekningartilvikum. Þannig hefði fjármálaráðuneytið búið til stóra skuld hjá Vegagerðinni. Fjármála- og efnahagsráðuneytið stýrir gjaldskrá markaðra tekna, eins og bensíngjalds. Hannes sagði að hefði ráðuneytið hækkað gjaldskrána eins og aðrar gjaldskrár markaðra tekna þá væru þessar tekjur að skila Vegagerðinni 25-26 milljörðum króna árlega en ekki 16 milljörðum króna. Þær upplýsingar fengust hjá fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins að unnið væri að endurskoðun fjárreiðulaga til að koma í veg fyrir að þetta. Fjárlaganefnd Alþingis hefði þegar lagt fram frumvarp þar sem lagt væri til að horfið væri frá mörkuðum tekjum. Þá væri einnig gert ráð fyrir því í nýju frumvarpi fjármálaráðherra um opinber fjármál.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira