Engum starfsmönnum verði sagt upp Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. ágúst 2014 16:59 Frá fundinum í dag. Mynd/Innanríkisráðuneytið
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra leggur á það áherslu að skrifstofur og starfstöðvar sýslumanna og lögreglustjóra um landið muni ekki taka breytingum þrátt fyrir breytt skipulag umdæma. Þá muni enginn missa vinnuna við breytingarnar. Þetta var meðal þess sem fram kom á fundi í innanríkisráðuneytinu í dag um undirbúning að breyttu skipulagi umdæma sýslumanna og lögreglustjóra í samræmi við lög sem samþykkt voru á Alþingi á liðnu vori. Þetta kemur fram á heimasíðu ráðuneytisins. Breyting á umdæmunum og aðskilnaður embætta sýslumanna og lögreglustjóra tekur formlega gildi 1. janúar næstkomandi en fram að því verður unnið að útfærslu breytinganna og eflingu embættanna að því er segir á vef ráðuneytisins. Fundinn sátu þeir embættismenn sem skipaðir hafa verið forstöðumenn embættanna ásamt sérfræðingum ráðuneytisins og fleirum. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra ávarpaði fundinn í upphafi og fór yfir breytingarnar. Lagði hún áherslu á að skrifstofur og starfsstöðvar embættanna myndu haldast og að engum starfsmönnum yrði sagt upp. Sérfræðingar ráðuneytisins fjölluðu síðan um eflingu embættanna, breytingar á skipulagi, stefnumótun þeirra, rætt var um fjármál og mannauðsmál, upplýsingakerfi og helstu verkefnin. Næstu skref í breytingunum eru að nýir forstöðumenn skipa verkefnisstjórn, hver í sínu umdæmi, og virkja starfsmenn til þátttöku. Verkefnisstjórn í hverju umdæmi skal sjá um að undirbúa verk-, tíma- og kostnaðaráætlum um breytingar og hrinda í framkvæmd. Ráðuneytið tilnefnir tenglið við embættin. Jafnframt verður á næstunni sett reglugerð um hvar aðalstöðvar viðkomandi embætta verða.
Tengdar fréttir Sýslumönnum fækkað úr 24 í níu Innanríkisráðherra hefur skipað nýja sýslumenn í embættin. 23. júlí 2014 18:36 Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Sjá meira
Sýslumönnum fækkað úr 24 í níu Innanríkisráðherra hefur skipað nýja sýslumenn í embættin. 23. júlí 2014 18:36