Ekkert umsóknarferli þegar bæjarstjórn réð fyrrum bæjarfulltrúa í vinnu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. júlí 2014 00:01 Ásta Kristín Sigurjónsdóttir og Elvar Jónsson.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð til síðustu fjögurra ára, hefur verið ráðin verkefnastjóri atvinnumála í sveitafélaginu. Austurfrétt greindi fyrst frá. Eydís Ásbjörnsdóttir, fulltrúi Fjarðalistans í bæjarráði, sat hjá við ráðninguna þar sem hún var hluti af meirihlutasáttmála Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. „Við viljum að þeir klári þær mannaráðningar sem þar koma fram,“ segir Elvar Jónsson, oddviti Fjarðalistans, í samtali við Vísi. Hann leggur áherslu á að auglýsa eigi störf sem þessi. „Við hjá Fjarðalistanum viljum að öll störf séu auglýst,“ segir Elvar. Hlutverk Ástu Kristínar, fyrrum fulltrúa nýsköpunar og þróunar hjá Austurbrú, verður að huga að stýringu atvinnumála í Fjarðarbyggð m.a. til þess að vinna að stefnumótun og fylgja eftir þróun á uppbyggingu miðstöðvar fyrir olíuleit og þjónustu við slíkan iðnað. Gert var ráð fyrir starfinu í meirihlutasamningi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Ásta Kristín er 35 ára gömul með menntun í viðskiptafræði, iðnrekstrarfræði og verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur um árabil sinnt ráðgjöf við ráðgjöf og sveitarfélög á Austurlandi á sviði nýsköpunar og þróunar.
Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Innlent Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Innlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Fleiri fréttir Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Fleiri gætu kallað eftir því að fá Hringveginn „Ágætis líkur á því að færð spillist“ Liðhlaupi úr Samfylkingunni fær annað sætið hjá Framsókn Snjókoma og slydda fyrir norðan en þurrt fyrir sunnan Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Bíða enn bóta eftir ofbeldið á Hjalteyri: „Við erum týnd og gleymd“ Lokar athugun á eftirliti MAST með blóðmerahaldi án athugasemda Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Stúlkan sem leitað var að er fundin Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Sjá meira