Skálmöld við jarðarför kveikti áhugann Birta Björnsdóttir skrifar 15. júlí 2014 20:00
Tónlist hefur lengi verið hluti af útförum Íslendinga og sálmar jafnan verið þar í aðalhlutverki. Það færist þó sífellt í aukana að lagaval við útfarir sé fært nær nútímanum og vinsæl dægurlög látin hljóma þegar einstaklingur er lagður til hinstu hvílu. Búi Stefánsson gerði þróun útfarartónlistar að umfjöllunarefni í lokaritgerð sinni í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Þar skoðaði hann breytt viðhorf til popp-, rokk- og dægurtónlistar í útförum undanfarinna ára og komst að því að töluverð viðhorfsbreyting hefur átt sér stað gagnvart útfarartónlist á undanförnum árum. Búi sagði áhuga á málefninu hafa kviknað þegar hann heyrði af manni sem varð að þeirri ósk sinni að fá lag með hljómsveinni Skálmöld leikið í jarðarför sinni. Hjálmar Jónsson Dómkirkjuprestur segir presta vissulega merkja þessa þróun.„Já það eiga sér alltaf stað einhverjar endurnýjanir í þessum efnum, sem betur fer. Reyndar er nú vinsælasti sálmurinn um 3000 ára gamall smellur sem nefnist Drottinn er minn hirðir," segir Hjálmar. „En mér finnst gaman þegar þetta blandast saman, hið gamla og það nýja." Í ritgerð Búa eru heilmörg dægulög tiltekin sem hljómað hafa við jarðarfarir Íslendinga undanfarin ár. Og þau eru úr öllum áttum, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.„Eldra fólk fer mikið til sólarlanda eftir að það hættir að vinna, og ég man eftir fyrir stuttu að lagið Suður um höfin hafi í tvígang verið leikið við útfarir eldra fólks. Það kallaði fram minningar í vinahópnum," segir Hjálmar. „Mér finnst gaman þegar það er brotið aðeins upp og nýju bætt við. En það má hinsvegar ekki kollvarpa hefðinni, að mínu mati."
Mest lesið Segist saklaus Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Innlent Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Innlent Fleiri fréttir „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Fleiri gætu kallað eftir því að fá Hringveginn „Ágætis líkur á því að færð spillist“ Liðhlaupi úr Samfylkingunni fær annað sætið hjá Framsókn Snjókoma og slydda fyrir norðan en þurrt fyrir sunnan Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Sjá meira