Yfirheyrður eftir að hafa viðurkennt skemmdarverk 8. júlí 2014 17:40 Mynd/Elías Jónatansson
Einn hefur verið yfirheyrður vegna skemmdanna sem unnar voru á friðuðu húsi í Bolungarvík aðfaranótt mánudags. Fulltrúi lögreglunnar staðfesti í samtali við Vísi nú síðdegis að manninum hefði verið sleppt að lokinni yfirheyrslu. Hann hefði áfram stöðu grunaðs í málinu. Karlmaður hringdi á bæjarskrifstofuna í Bolungarvík í gær og sagðist bera ábyrgð á því að skemmdarverkin voru framin. Sá hefði hins vegar ekki sjálfur framkvæmt gjörninginn að sögn Elíasar Jónatanssonar, bæjarstjóra Bolungarvíkur. Húsið sem varð fyrir skemmdunum er 105 ára gamalt og friðað. Lögreglan staðfestir við Vísi að rannsókn málsins miði ágætlega. Nokkrar ábendingar hafi borist og sömuleiðis hvetji lögreglan alla sem hafi ábendingar fram að færa til þess að hafa samband. Frekari upplýsingar vildi lögreglan ekki veita. Ekki liggur ljóst fyrir hvaða tæki var notað til að vinna skemmdir á húsinu. Sömuleiðis vekur athygli að engin vitni hafi tekið eftir því þegar skemmdirnar voru unnar. Þrjár traktorsgröfur eru í Bolungarvík en í ljósi þess hve gamalt húsið er og illa farið gætu önnur tæki, svo sem lyftarar, hafa verið notuð. Lengi hafa deilur staðið yfir um húsið sjálft og hvort eigi að rífa það, eða gera það upp. Bæjarins besta sagði frá því í fyrra að Guðrún Stella Gissurardóttir og Soffía Vagnsdóttir hefðu gert bindandi tilboð í húsið. Þær hafi viljað koma upp þar framleiðslu og þjónustu sem byggði á sögunni um landnámskonuna Þuríði sundafylli. Nú stendur yfir bæjarráðsfundur í Bolungarvík þar sem framtíð hússins verður rædd. Smiðir hafa gengið frá húsinu svo það hrynji ekki og lokað því.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira