Sat slasaður í bílnum meðan vegfarendur keyrðu framhjá Randver Kári Randversson skrifar 20. maí 2014 15:55 Ingi Ragnarsson slasaðist eftir útafakstur af veginum yfir Fagradal í gærmorgun. Mynd/úr einkasafni.
Ingi Ragnarsson varð fyrir því óhappi að aka út af veginum yfir Fagradal í gærmorgun og dvelur nú á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað með brákaðan hryggjarlið. Um 20-30 bílar keyrðu framhjá á meðan hann beið eftir aðstoð.Austurfrétt segir frá þessu. Í samtali við Vísi sagði Ingi að sennilega hafi fólk ekki áttað sig á því að um slys hafi verið að ræða. Líklegra sé að vegfarendur hafi talið að hann hafi ekið viljandi út af veginum en hann var á stórum breyttum jeppa og bíllinn hafi ekki oltið. Hann hafi ekki verið auðsjáanlega slasaður og gat sjálfur hringt eftir aðstoð lögreglu. „Þetta leit ekkert illa út, það var snjór þarna og ég var á breyttum jeppa, og bíllinn var utan vegar, nánast eins og honum hefði bara verið lagt þarna. Maður skilur því alveg að fólk hafi ekki haft miklar áhyggjur af þessu. Eflaust hefði maður keyrt framhjá þessu sjálfur líka.“ Ingi vill brýna fyrir fólki að spá betur í það hvort eitthvað sé að þegar það sér kyrrstæðan bíl út í vegarkanti. „Það getur alltaf verið eitthvað alvarlegt að ef bíll er kyrrstæður út í kanti, jafnvel hjartaáfall eða eitthvað slíkt.“ Hann á von á því að verða útskrifaður af Fjórðungssjúkrahúsinu fljótlega, jafnvel á morgun.
Mest lesið Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Innlent Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Sjá meira