Reyndi að koma sökinni yfir á barnabarnið 20. maí 2014 15:56
Drengirnir sem Hallbjörn Hjartarson var í dag dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands Vestra í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa brotið gegn kynferðislega eru barnabörn hans. Brotin voru framin á árunum 1999 til 2011 ýmist á heimili Hallbjörns eða heimilum drengjanna. Brotin gegn öðrum drengnum áttu sér stað frá því hann var 7 ára árið 1999 þar til hann var orðinn 18 ára árið 2011. Hallbjörn er sakfelldur fyrir að hafa í tugi skipta á þessu tímabili kysst drenginn tungukossi og káfað á honum utanklæða á kynfærum og rassi. Hvað hinn drenginn varðar er Hallbjörn dæmdur fyrir að hafa kysst hann tungukossi og fróað honum með því að nudda ber kynfæri hans. Það átti sér stað árið 1999. Hann er síðan dæmdur fyrir að hafa um ári síðar kysst drenginn tungukossi og haft við hann munnmök. Auk þess að hafa látið drenginn fróa sér með því að nudda ber kynfæri Hallbjörns í nokkra stund. Eins og fram hefur komið á Vísi réðust tveir piltar á Hallbjörn í fyrra. Árásin tengdist því að Hallbjörn hefði misnotað barnabörn sín kynferðislega. Stuttu síðar mætti annar drengurinn, en hann er fullorðinn í dag, á heimili Hallbjörns til að knýja fram játningu. Hallbjörn sagði fyrir dómi að hann hefði verið hræddur við barnabarnið og því játað allt sem honum var gefið að sök. Í framhaldinu sendi Hallbjörn barnabarninu bréf þar sem fram kom að þeir hittust. Hann sendi einnig móður hans bréf. Þar játaði hann brotin að einhverju leyti. Fyrir dómi sagði hann ástæðuna fyrir því hafa verið þá að hann hafi verið hræddur um að hann kæmi aftur og beitti sig ofbeldi eða skemmdi eitthvað. Segist einangraður eftir að málið kom upp Hallbjörn er 78 ára. Hann vildi ekki tjá sig um dóminn þegar Vísir leitaði eftir viðbrögðum hans og sagðist hann ekki hafa verið viðstaddur þegar dómur var upp kveðinn. Fyrir dómi lýsti hann persónulegum högum sínum þannig að eftir að málið kom upp sé hann einangraður líkt og hann sé í stofufangelsi. Dóttir hans færi honum mat einu sinni á dag og hjúkrunarkona komi vikulega. Hann fari lítið út, eingöngu í búðina af og til og svo heim aftur. Heilsa hans sé sæmileg en hann sé þunglyndissjúklingur og sykursjúkur. Minni hans hafi dalað og hann sé farinn að gleyma töluvert miklu. Hann segist hafa reynt að svipta sig lífi eftir að fórnarlömb hans stigu fram. En hann hafi raunar sagt það við eiginkonu sína fyrir mörgum árum að hann vildi ekki lifa.Hallbjörn neitaði sök Hallbjörn neitaði sök en í dóminum kemur fram að framburður hans hafi á stundum verið ruglingslegur. Ósamræmi hafi verið í frásögn hans af atburðum. Framburður hans hafi á stundum verið andstæður framburði annarra vitna. Drengirnir voru hins vegar staðfastir í lýsingum sínum á atburðunum og óverulegt ósamræmi var í framburði þeirra hjá lögreglu og fyrir dómi. Báðir höfðu drengirnir greint öðrum frá háttsemi afa síns áður en lögreglurannsókn hófst. Að mati dómsins var framburður þeirra trúverðugur. Framburðurinn hafði einnig stoð í bréfum sem Hallbjörn skrifaði til annars drengsins og móður hans. Annar drengurinn, sá sem var misnotaður í lengri tíma, átti erfitt með að lýsa háttsemi Hallbjörns og fékkst hann ekki til þess að lýsa neinu í smáatriðum. Í dóminum kemur fram að til þessa yrði að horfa þegar leyst væri úr sakarefninu hvað hann varðar. Framburður hans þótti hins vegar trúverðugur og fékk auk þess stoð í framburðum annarra vitna, þar á meðal föður hans og systur.Á sér engar málsbætur Við ákvörðun refsingar var horft til þess að Hallbjörn braut gegn tveimur barnabörnum sínum og brotin gangvart öðru barninu stóðu í langan tíma. Bréf sem hann sendi barnabarni sínu og móður hans sé honum síst til málsbóta en í þeim hafi hann reynt að koma ábyrgð á brotum sínum á brotaþola. Þetta var allt virt honum til refsiþyngingar og fram kom að Hallbjörn ætti sér engar málsbætur. Ekki kæmi til álita að binda refsinguna skilorðsbundið.
Tengdar fréttir Dæmdir í 18 mánaða fangelsi fyrir árás á Hallbjörn Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra í dag. 8. apríl 2014 16:10 Hallbjörn dæmdur í þriggja ára fangelsi Hallbjörn Hjartarson var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum. 20. maí 2014 14:41 Grétu meðan þeir börðu Hallbjörn Piltarnir tveir sem ákærðir eru fyrir að líkamsárás á Hallbjörn Hjartarson mættu fyrir rétt í dag. 6. mars 2014 12:04 Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira
Dæmdir í 18 mánaða fangelsi fyrir árás á Hallbjörn Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra í dag. 8. apríl 2014 16:10
Hallbjörn dæmdur í þriggja ára fangelsi Hallbjörn Hjartarson var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum. 20. maí 2014 14:41
Grétu meðan þeir börðu Hallbjörn Piltarnir tveir sem ákærðir eru fyrir að líkamsárás á Hallbjörn Hjartarson mættu fyrir rétt í dag. 6. mars 2014 12:04