Innlent

Kýldi 12 ára dreng í andlitið

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Hari
Karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot. Hann var dæmdur fyrir að hafa ráðist ölvaður, á 12 ára dreng og meðal annars kýlt hann með krepptum hnefa í kinnina.

Þá var hann dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur auk vaxta í miskabætur, en dóminn má sjá hér.

Manninum var gefið að sök að ráðist á drenginn og sýnt honum yfirgang og ruddalega framkomu.

Fyrst með því að grípa í hann, draga hann um gangstíg og henda honum að grindverki, síðan tekið hann upp með því að halda í bæði eyru hans, taka snjó og nudda í andlit hans, því næst kýlt hann með krepptum hnefa hægri handar í vinstri kinn, en brotaþoli hafi náð að komast í burtu frá ákærða stuttu seinna með því að klæða sig úr úlpu, peysu og bol sem ákærði hafi haldið í.

Afleiðingar árásarinnar hafi verið þær að brotaþola hafi svimað eftir hnefa­högg ákærða, verið skelkaður og hlotið roða á vinstra kinnbeini framan við eyra.

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu voru lögreglumenn kallaðir að heimili drengsins að kvöldi 28. desember 2012. Þar hafi drengurinn ásamt vinum sínum sagt að þeir hafi verið að leika sér þegar maðurinn hafi komið til þeirra og beðið þá um að hjálpa sér að finna son sinn. Því hafi þeir neitað og einhver orðaskipti hafi farið þeirra á milli.

Þegar lögreglan fór á heimili mannsins mun hann hafa mætt þeim mjög ölvaður og ógnandi. Þegar sonur hans spurði hann út í hvað hafi gerst, öskraði hann bara á lögreglumennina. Þeir ákváðu að handtaka manninn þegar hann gerði sig líklegan til að ráðast á þá og eftir það reyndi hann að bíta þá og hrækja á þá.

Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða 550 þúsund krónur í sakarkostnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×