Kýldi 12 ára dreng í andlitið Samúel Karl Ólason skrifar 2. maí 2014 14:40 Vísir/Hari
Karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot. Hann var dæmdur fyrir að hafa ráðist ölvaður, á 12 ára dreng og meðal annars kýlt hann með krepptum hnefa í kinnina. Þá var hann dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur auk vaxta í miskabætur, en dóminn má sjá hér. Manninum var gefið að sök að ráðist á drenginn og sýnt honum yfirgang og ruddalega framkomu. Fyrst með því að grípa í hann, draga hann um gangstíg og henda honum að grindverki, síðan tekið hann upp með því að halda í bæði eyru hans, taka snjó og nudda í andlit hans, því næst kýlt hann með krepptum hnefa hægri handar í vinstri kinn, en brotaþoli hafi náð að komast í burtu frá ákærða stuttu seinna með því að klæða sig úr úlpu, peysu og bol sem ákærði hafi haldið í. Afleiðingar árásarinnar hafi verið þær að brotaþola hafi svimað eftir hnefahögg ákærða, verið skelkaður og hlotið roða á vinstra kinnbeini framan við eyra. Samkvæmt frumskýrslu lögreglu voru lögreglumenn kallaðir að heimili drengsins að kvöldi 28. desember 2012. Þar hafi drengurinn ásamt vinum sínum sagt að þeir hafi verið að leika sér þegar maðurinn hafi komið til þeirra og beðið þá um að hjálpa sér að finna son sinn. Því hafi þeir neitað og einhver orðaskipti hafi farið þeirra á milli. Þegar lögreglan fór á heimili mannsins mun hann hafa mætt þeim mjög ölvaður og ógnandi. Þegar sonur hans spurði hann út í hvað hafi gerst, öskraði hann bara á lögreglumennina. Þeir ákváðu að handtaka manninn þegar hann gerði sig líklegan til að ráðast á þá og eftir það reyndi hann að bíta þá og hrækja á þá. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða 550 þúsund krónur í sakarkostnað.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira