Innlent

Síðasti dagurinn í Kvennó

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Draugabanar föðmuðust.
Draugabanar föðmuðust. Vísir/Daníel
Útskriftarárgangur Kvennaskólans í Reykjavík klæddi sig upp í tilefni síðasta skóladags og stúdentsprófana sem framundan eru.

Nemendur hittu bekkjarfélaga sína í heimahúsum í morgun en hittust svo í skólanum á ellefta tímanum. Samkoma var í portinu bak við Miðbæjarskólann og voru nemendur í banastuði þegar Daníel Rúnarsson, ljósmyndara Fréttablaðsins og Vísis, bar að garði.

Kvennaskólinn býður upp á stúdentspróf á þremur árum þannig að í útskriftarárganginum er bæði að finna nemendur á þriðja og fjórða ári. Framundan er próflestur fyrir stúdentsprófin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×