Innlent

Báturinn sem farinn var að leka sokkinn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/egill
Bátur sem farinn var að leka fyrr í dag er sokkinn. Báturinn var staddur um 25 sjómílur vestur af Patreksfirði og sökk hann rétt eftir klukkan 14 í dag. Skipverji bátsins er nú um borð í nærstöddum bát, heill á húfi.

Þyrlu Landhelgisgæslunnar hefur verið snúið til baka þar sem ekki er lengur þörf fyrir dælubúnað er hún flutti á staðinn.

Nokkurt drasl flýtur í sjónum þar sem báturinn sökk og eru fiskibátar á svæðinu að hirða það upp þar sem það er hættulegt hraðskreiðum bátum. Björgunarskipið Vörður frá Patreksfirði er enn á siglingu á staðinn en stærri hlutir sem fiskibátarnir ráða ekki við verða teknir um borð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×