Innlent

Skipverji í lekum bát 25 sjómílur vestur af Patreksfirði

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
VÍSIR/EGILL
Vaktstöð siglinga bárust neyðarboð frá skipverja á báti sem farinn var að leka og orðinn nokkuð siginn. Hann var staddur um 25 sjómílur vestur af Patreksfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Nærstödd skip og bátar voru þegar kölluð til aðstoðar. Einn nærstaddur fiskibátur er kominn á staðinn, viðbúinn því að taka skipverjann um borð gerist þess þörf.

Björgunarskipið Vörður frá Patreksfirði er einnig á leiðinni með dælur meðferðis. Siglingin getur tekið allt að tveimur tímum. Þá hefur þyrla Landhelgisgæslunnar einnig verið send á staðinn með dælur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×