Suárez sér eftir tveimur atvikum en ekki Evra-málinu 13. febrúar 2014 09:25 Suárez sér eftir tveimur hlutum á sínum ferli. Vísir/Getty
Luis Suárez, framherji Liverpool, óttast það að meiðast og missa af HM í Brasilíu í sumar. Suárez hefur farið hamförum allt tímabilið og er lykilmaður í úrgúvæska landsliðinu sem gæti gert góða hluti í Brasilíu í sumar. Hann veit aftur á móti að ein tækling eða ein slæm meiðsli geta gert út um drauma hans að spila á HM í sumar líkt og kom fyrir Kólumbíumanninn Radamel Falcao og Theo Walcott, leikmann Arsenal. „Sannleikurinn er sá að ég er hræðist það sem kom fyrir Falcao og Walcott,“ sagði Suárez í útvarpsviðtali. Hann ætlar þó ekkert að hlífa sér það sem eftir lifir leiktíðar enda Liverpool í góðum málum í deildinni og bikarnum. „Maður lifir í nútíðinni og þarf að gera sitt allra besta fyrir sitt félag. Það þýðir ekkert að hugsa um þetta alla daga.“ „Að spila á HM er einstakt tækifæri og þar vil ég vera en núna einbeiti ég mér alfarið að úrvalsdeildinni. Ég leyfi mér seinna meir að hugsa um landsliðið,“ sagði Suárez. Markahrókurinn var einnig spurður út í mistökin á sínum ferli og hann segist hafa gert tvenn mistök. Það sem kom upp á milli hans og Patrice Evra fer ekki í þann flokk. „Ég hef gert tvenn mistök á mínum ferli. Fyrst þegar ég spilaði fyrir Ajax og beit leikmann og svo þegar ég beit Branislav Ivanovic. Þetta eru einu mistökin sem ég hef gert sem fótboltamaður,“ sagði Suárez. „Ég baðst fyrirgefningar og þar með var því lokið. Ég sé ekki eftir neinu öðru. Allt annað sem gerðist á Englandi var bara eins og bíómynd sem allir hér í landi trúðu.“ „Það sem gerðist á milli mín og Evra var allt ósatt. Ég var sakfelldur án sannanna. En það er í fortíðinni núna og ég er ánægður í dag. Ég hef þroskast og nú hugsa ég hlutina áður en ég framkvæmi þá,“ sagði Luis Suárez.
Enski boltinn Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Willum hrifinn af norska módelinu Sport Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Sjá meira