Hvalasafnið á Húsavík fær fjárstyrk úr óvæntri átt Svavar Hávarðsson skrifar 24. ágúst 2014 10:00 Stjórn og starfsmenn Hvalasafnsins með styrkina til steypireyðarverkefnisins. Frá vinstri: Þorkell Lindberg Þórarinsson, Einar Gíslason, Huld Hafliðadóttir, Óli Halldórsson og Guðbjartur Ellert Jónsson.
Hvalasafnið á Húsavík hefur í annað sinn fengið fjárstyrk frá góðgerðasamtökum sem heyra undir bandarísku ferðaskrifstofuna Abercrombie & Kent. Af þessu tilefni voru fengin að láni bein úr steypireyðargrind sem vistuð er hjá Náttúrufræðistofnun - gersemi sem safnið berst fyrir að fá til varðveislu til framtíðar. Styrkarfé góðgerðasamtakanna, sem nemur um fjórum milljónum króna í heild, er ætlað að styðja við steypireyðarverkefni hvalasafnsins. Undirbúningur er langt kominn og menn eru stórhuga. Fyrirhugað er að byggja viðbyggingu við Hvalasafnið til að hýsa bein þessarar stærstu skepnu heimns en beinagrind hennar er 25 metra löng. Horft er til þess að fyrirhuguð viðbygging geti einnig nýst sem menningarsalur fyrir íbúa Þingeyjarsýslu. Einar Gíslason, framkvæmdastjóri Hvalasafnsins, útskýrir að styrkveitendurnir, stofnendur Abercrombie & Kent Philanthropy þau Jorie Butler og Geoffrey Kent, komu til Húsavíkur 2001 þegar safnið var að huga að flutningi í núverandi húsnæði og heilluðust af því starfi sem var unnið á Húsavík. Þau lýstu þá strax áhuga á því að styrkja safnið en ekki varð af því fyrr en í fyrrasumar, og svo aftur í ár. Fram hefur komið að Náttúruminjasafn Íslands hefur hug á því að hafa nefnda beinagrind til sýnis í Perlunni í Reykjavík, en tekist er á um það hvar henni er best fyrir komið. Einar byggir sitt mál ýmsum rökum varðandi „slaginn“ við Reykjavík um grindina. Hvalasafnið er eina hvalasafnið á landinu rekið á vísindalegum grunni með stuðningi ríkis og samfélags, og myndi ekki einungis njóta ávinnings af því að hafa grindina heldur öll ferðaþjónusta á Norðausturlandi. Það byggir undir yfirlýst markmið stjórnvalda um að auðga ferðaþjónustu á landsbyggðinni. „Safnið er síðan staðsett við Skjálfanda þar sem reglulega sjást steypireyðar, og þegar hefur verið opnuð ný hvalasýning á Granda sem þynnir rökin fyrir því að grindin verði sett upp í Perlunni,“ segir Einar. Einar segir að steypireyðarverkefni safnsins hafi verið kynnt fyrir öllum ráðherrum ríkisstjórnarinnar sem koma að málaflokknum. Öll áform um uppbyggingu í tengslum við sýningu steypireyðargrindarinnar bíða hins vegar ákvörðunar Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira