Styttist í arðbæra skógrækt Freyr Bjarnason skrifar 22. ágúst 2014 07:00 Formaðurinn við setningu aðalfundar Skógræktarfélags Íslands á Akranesi. Mynd/Ragnhildur Freysteinsdóttir
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands var haldinn á Akranesi um síðustu helgi og heppnaðist hann afar vel. „Það sem stendur upp úr er að það styttist óðum í að ræktun skógar verði arðbær atvinnuvegur þegar til framtíðar er litið,“ segir Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, og bætir við að undanfari þess sé samningur sem var gerður við Elkem fyrir nokkrum árum. Hann snýst um að félagið grisji skóga og selji viðinn m.a. til Elkem og síðar meir hugsanlega til verksmiðja sem eiga að rísa á Bakka og á Reykjanesi. „Í langri framtíð vitum við að það er eftirspurn eftir viði og við munum aldrei geta fullnægt henni að fullu á næstu árum og áratugum. En það er ánægjulegt að vita af þessum möguleika að á sama tíma og þú ert að byggja upp skóg getir þú selt grisjunarviðinn,“ segir Magnús. „Þó að ábatinn sé ekki verulegur stendur þetta undir kostnaði.“ Síðastliðið vor var þingsályktunartillaga einmitt samþykkt á Alþingi um að stórefla skógrækt á Íslandi sem arðsama atvinnugrein. Á aðalfundinum var því jafnframt fagnað að í nóvember í fyrra var skrifað undir samning um 35 milljóna króna framlag á ári næstu fimm árin í nýskógrækt, eða landgræðslu. Síðan átakið hófst árið 1990 hefur að meðaltali verið plantað um 7-800 þúsund plöntum á ári hverju.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira