Leit við og sá son sinn hangandi á hálsinum í rúllugardínum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 22. ágúst 2014 11:14 Hér má sjá áverkana á hálsi drengsins. „
Þetta var hræðilegt. Ég sá að hann gat ekki andað og þurfti að stökkva til,“ segir Hafdís Ásta Guðmundsdóttir sem horfði á son sinn hanga á hálsinum í bandi sem er notað til að hækka og lækka rúllugardínur, um miðjan dag í gær. „Hann gat ekki einu sinni grátið, hann náði ekki andanum,“ segir Hafdís um atvikið. Hún hvetur foreldra til þess að gæta þess vel að börn komist ekki í þessi bönd og vonast til þess að fleiri geti lært af sinni reynslu. Sonur Hafdísar er tveggja ára og var að fara að horfa á sjónvarpið í gær, á heimili fjölskyldunnar í Garðinum. „Hann var að leika sér í sófanum og sófinn er upp við gluggakistuna. Hann er rosalega hrifinn af hálsmenum og hefur örugglega haldið að bandið væri hálsmen. Svo ætlaði hann að stökkva í sófann og þá var bandið fast við hálsinn á honum.“ „Ég var að setja mynd í tækið fyrir hann og sneri baki í hann. Ég heyrði svona köfnunarhljóð og þegar ég leit við blasti þetta við mér.“ Bandið í gardínunum gaf ekki eftir og þurfti Hafdís að stökkva til og losa hann. „Ég þakka bara fyrir að ég var þarna hjá honum,“ segir hún. „Maður þarf ekki að líta af börnunum í nokkrar sekúndur, til þess að svona geti gerst. Ef ég hefði ekki verið hjá honum hefði þetta getað farið svo miklu, miklu verr.“ Hafdís hafði samband við móður sína sem er sjúkraliði. „Ég hringdi í mömmu, það voru mín fyrstu viðbrögð. Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að fara með hann til læknis en hann slapp bara það vel. Hann var fljótlega orðinn mjög hress og farinn að hlæja og leika sér. En þetta var óneitanlega mikið „sjokk“ fyrir okkur.“ Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hlaut sonur Hafdísar áverka á hálsi. „Í morgun, þegar við vöknuðum, var þetta farið. Þetta fór því alveg ótrúlega vel. Nú er ég búin að hengja böndin í öllum gardínunum upp, hérna á heimilinu, þannig að hann komist ekki í þau. Ég hvet aðra foreldra að gera slíkt hið sama, því slysin gera aldrei boð á undan sér,“ segir Hafdís. Hafdís skrifaði um málið á Facebook. Færslu hennar má sjá hér að neðan: Post by Hafdís Ásta Guðmundsdóttir.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira