100 þúsund gefi höfundur Staksteina sig fram Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 5. september 2014 10:29 Hver er huldumaðurinn? „
Ef þessi aðili er tilbúinn að gangast við því að hafa skrifað Staksteina dagsins og heita því að gefa 100.000 kr. til góðgerðamála um hver mánaðamót næstu 12 mánuði mun ég gera slíkt hið sama á móti.“ Þetta skrifar píratinn og borgarfulltrúinn Halldór Auðar Svansson á Facebook síðu sína en hann er ósáttur við Staksteina Morgunblaðsins fimmtudaginn 4.september. Þar segir, undir yfirskriftinni „Leyndarmál meirihluta Pírata“, að Halldór hafi meðal annars fengið greitt fyrir að þegja um upplýsingar og starfsemi Reykjavíkurborgar. Í Staksteinum blaðsins segir orðrétt:„Og kjósendur pírata ættu ekki að gera ráð fyrir að fulltrúar þeirra muni rugga bátnum, enda var greitt með vel launuðu gæluverkefni fyrir þögnina.“ Halldór segir að þarna sé farið með ósannindi og meiðandi sé að sjá að gefið sé í skyn að gildi hans séu föl fyrir fé. „Ég til til dæmis þáði ekki skuldaleiðréttinguna svonefndu, þó ég hafi átt rétt á henni, af því mér hugnast ekki starfshættir þeirra sem gefa hana og vil ekki finnast ég skulda þeim nokkuð,“ skrifar Halldór jafnframt. Halldór Auðar segir í samtali við Vísi að hann ætli ekki að reyna að giska á hver höfundurinn dularfulli kunni að vera. „Ég ætla ekki að reyna að giska á það, vonast bara til að það komi í ljós. Þetta eru það persónulegar ásakanir að mér þætti betra að vita frá hverjum þær eru komnar,“ segir Halldór. Höfundurinn hefur ekki fallist á tilboð hans, en tilboðið hefur engan fyrningartíma. Færslu Halldórs í heild sinni má sjá hér að neðan. Innlegg frá Halldór Auðar Svansson.
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira