Vill efla þátttöku í NATO Stefán Árni Pálsson skrifar 5. september 2014 15:35 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er staddur í Wales. vísir/gva
Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Wales lauk í dag, en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, sátu fundinn fyrir Íslands hönd. Á fundum aðildarríkja fyrr í dag tilkynnti forsætisráðherra um þær fyrirætlanir íslenskra stjórnvalda að efla þátttöku sína og framlög í þágu eigin varna og Atlantshafsbandalagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu. Þar segir að stjórnvöld hyggist fjölga borgaralegum sérfræðingum í störfum bandalagsins og auka fjárframlög í einstök verkefni þess, þ.á m. í Úkraínu. Þá munu stjórnvöld auka stuðning við loftrýmisgæslu hér á landi, þ.m.t. við þyrlubjörgunarþjónustu. Fram kom á fundunum að leiðtogar aðildarríkjanna hafi verið sammála um að snúa af braut lækkandi framlaga til varnarmála og samþykktu þeir meðal annars sérstaka viðbragðsáætlun sem gerir ráð fyrir auknum viðbragðsflýti herafla og aukinni viðveru í austanverðri Evrópu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi Atlantshafstengslanna og sameiginlegra varna á tímum breytts öryggislandslags í austanverðri Evrópu. Hann minnti einnig á norðurslóðir og mikilvægi þess að aðildarríki séu meðvituð um þróun mála þar. Sigmundur þakkaði þeim ríkjum sem sinnt hafa loftrýmisgæslu á Íslandi sem þjónaði þýðingarmiklu hlutverki í því tilliti. Einnig lagði ráðherra áherslu á gildi vefvarna og öryggis á hafinu, sem og framfylgd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi. Þá lýsti forsætisráðherra yfir áhyggjum af uppgangi ISIL hryðjuverkasamtakanna í Írak og Sýrlandi. Á fundi með forseta Úkraínu í NATO-Úkraínunefndinni, sem haldinn var í gær, áréttaði forsætisráðherra stuðning og samstöðu með stjórnvöldum í Úkraínu, og fordæmdi framferði Rússlandsstjórnar í landinu og ólögmæta innlimun Krímskaga. Hvatti ráðherra til þess að friðsamlegra leiða verði leitað til lausnar deilunni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira