Jörgen segist eiga helming í húsinu sem hann leigði út Kjartan Atli Kjartansson skrifar 13. október 2014 15:58 Málið er til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Olga Genova segir fyrrum sambýlismann sinn, Jörgen Má Guðnason, hafa hent leigjendum á íbúð sinni við Hrísateig út. Hann hafi sjálfur leigt öðrum íbúðina og stungið tekjunum í eigin vasa. Jörgen hefur stefnt Olgu þar sem hann fullyrðir að íbúðin í Hrísateig sé að hálfu í hans eigu. Málið er til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fyrir liggur samningur sem Olga undirritaði, en samkvæmt heimildum Vísis, segist Olga hafa verið þvinguð til þess að skrifa undir samninginn. Jörgen hefur verið ítrekað til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarin misseri þar sem fólk hefur sakað hann um svik og pretti. Meðal annars í tengslum við leigu á herbergjum í húsinu við Hrísateig sem tekist er á um. Jörgen var til umfjöllunar hjá DV þar sem rætt var við mann sem fór úr herbergi sem hann leigði í húsinu í tíu daga og þegar hann kom aftur var búið að leigja herbergið út til annarrar stúlku. Vísir fjallaði um Jörgen í tengslum við notkun hans á léninu Parketslíparinn.is. Í frétt Vísis kom fram að Jörgen hafði haldið síðunni úti í óþökk Halldórs Sveinssonar sem er eigandi fyrirtækisins Parketslíparinn ehf. Halldór kærði Jörgen tvívegis til neytendastofu fyrir að nota lénið, því það væri villandi. Í frétt Vísis kom fram að heimildir væru fyrir því að Jörgen hefði ekki leiðrétt fólk sem taldi hann ranglega vera starfsmann Halldórs. Jörgen þvertók fyrir það í samtali við Vísi og þegar hann var spurður af hverju hann breytti ekki slóðinni á vefsíðu sinni sagði hann: „Ég reyndi að fá þá sem hýsa síðuna til að breyta henni, en það var ekki hægt.“ DV fjallaði um samskipti Olgu og Jörgens í júní. Í viðtali við Olgu kom fram að hún hefði kært Jörgen fyrir líkamsárás, líflátshótun, eignaspjöll, húsbrot, þjófnað og skjalafals. Hún hefur auk þess tilkynnt um eftirför, hótanir og ofsóknir sem og stefnt honum fyrir meiðyrði. Í viðtalinu líkti Olga sambúð með Jörgen við það að búa á eldfjalli. Hún sagðist hafa þurft að koma barni sínu í skjól til móður sinnar í Rússlandi en Olga er frá borginni Omsk í Síberíu. Í viðtalinu sagði Olga einnig frá því að hún ætti umrædda eign við Hrísateig algjörlega sjálf. Hún sagði Jörgen hafa bolað þeim leigjendum sem hún hafi samið við út úr íbúðinni og leigt öðrum íbúðina; sem greiddu leigu í hans vasa. „Hann réðst inn í Hrísateig og rak út alla leigjendur sem höfðu gert samning við mig. Hann hirti alla leiguna þrátt fyrir að ég sé hundrað prósent eigandi eignarinnar. Öll lán sem hvíla á Hrísateig eru í mínu nafni. Samkvæmt kaupsamningi er ég löggiltur eigandi,“ sagði Olga við DV í júní. Olga sagðist hafa keypt íbúðina fyrir erfðafé en hún fékk íbúð í Rússlandi í arf. Hún tók einnig lán fyrir kaupum á húsinu. Hún segir að Jörgen hafi komist inn í íbúðina með því að þykjast koma með sófa til leigjanda. Hann hafi fengið lykla að láni og síðan bolað leigjendunum út.
Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Sjá meira