Heilsulind sem varð að geymslu fyrir ruslatunnur Jón Júlíus Karlsson skrifar 26. ágúst 2014 20:25
Viðbygging við Kórinn í Kópavogi sem átti að hýsa eina glæsilegustu líkams- og heilsuræktarstöð landsins er í dag notuð sem geymsla undir ruslatunnur Kópavogsbæjar. Bæjarstjóri Kópavogs telur ólíklegt að húsnæðið muni nokkurn tíma þjóna upprunalegum tilgangi. Viðbyggingin við fjölnota íþróttahöllina Kórinn í Kópavogi er yfir 3000 fermetrar að stærð. Metnaðarfull áform Knattspyrnuakademíu Íslands ehf., sem knattspyrnuhetjurnar Arnór og Eiður Smári Guðjohnsen, Ásgeir Sigurvinsson og Guðni Bergsson komu meðal annars að, stöðvuðust í kjölfar efnahagshrunsins og tók Kópavogsbær við íþróttamannvirkinu. Viðbyggingin átti að hýsa eina glæsilegustu líkams- og heilsuræktarstöð landsins en er í dag geymsla fyrir ruslatunnur Kópavogsbæjar og ýmsan skólabúnað, svo sem borð og stóla. Greint var frá þessu á vefsíðu Kópavogsblaðsins um helgina. Þegar gengið er niður á neðri hæðina blasir við draumur sem ekki rættist um glæsilega heilsulind með heitum pottum, gufubaði og 25 metra langri sundlaug sem var sérstaklega hönnuð með endurhæfingu íþróttamanna í huga. „Þetta fylgdi með í kaupunum og við höfum engin plön uppi um að opna líkamsræktarstöð þarna líkt og var fyrirhugað,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs. „Hins vegar eru fjölmörg tækifæri sem við sjáum fyrir okkur í framtíðinni en það þurfa að vera réttu verkefnin.“ Ármann telur líklegast að viðbyggingunni verði breytt í grunn- eða framhaldsskóla þegar fram líða stundir. Ekki er gert fyrir framkvæmdum í náinni framtíð.Er heppilegt að þessi bygging sé notuð sem geymsla fyrir ruslatunnur? „Húsið er þarna og okkur vantar pláss undir dót. Við hefðum ekki byggt svona geymsluhúsnæði ef þú ert að spyrja að því,“ svarar Ármann. „Til skamms tíma þá nýtum við það undir ýmislegt sem við þurfum að geyma hvort sem er.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira