Verzlingarnir sextán fá að snúa aftur Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. október 2014 11:16 Nemendurnir fá að halda áfram námi sínu.
Sextán nemendur Verzlunarskóla Íslands, sem var tímabundið vísað frá vegna drykkju í húsakynnum skólans, fá að halda áfram námi sínu. Þetta staðfestir Ingi Ólafsson skólameistari í samtali við Vísi. „Já, þeir fá að halda áfram. Öll dýrin í skóginum eru vinir núna,“ segir hann. Ingi segir að gert hafi verið samkomulag við hvern og einn nemanda en hann vill ekki fara nákvæmlega í hverju það felist. „Þeir átta sig alveg á mistökunum sínum,“ útskýrir hann enn fremur. Í síðustu viku sagði Vísir frá því að sextán piltum á fjórða ári í Verzlunarskólanum hafði verið vísað úr skólanum eftir að hafa neytt áfengis í kjallara skólans, áður en þeir héldu í Leifsstöð þar sem þeir áttu flug til Ítalíu í námsferð sem tengdist listfræðinámi þeirra. Ingi skólameistari sagði þá í samtali við Vísi að hann ætlaði að funda með nemendunum og gefa þeim kost á því að útskýra hvers vegna þeir ættu að fá að ljúka námi sínu við skólann. Í fyrstu frétt Vísis af málinu kom fram að afar strangar reglur séu um neyslu vímuefna í skólanum: „Notkun tóbaks (reyktóbak, neftóbak og munntóbak) er stranglega bönnuð í húsakynnum skólans og á lóð hans. Stranglega er bannað að hafa um hönd áfengi og önnur vímuefni eða vera undir áhrifum þeirra í húsnæði skólans og á lóð hans. Neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð á öllum samkomum og ferðalögum sem eru í nafni skólans,“ segir í reglum Verzlunaskólans.
Tengdar fréttir Reknir úr Verzló fyrir áfengisneyslu Sextán piltum á fjórða ári í Verzlunarskóla Íslands var í morgun vísað úr Verzlunarskóla Íslands fyrir að hafa neytt áfengis í skólabyggingunni. 21. október 2014 14:55 Dýrkeypt djamm Verzlinga Pöntuðu sér Hummer-limmósínu áður en þeir héldu út til Ítalíu í listaferð. 21. október 2014 16:51 Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Fleiri fréttir Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Sjá meira
Reknir úr Verzló fyrir áfengisneyslu Sextán piltum á fjórða ári í Verzlunarskóla Íslands var í morgun vísað úr Verzlunarskóla Íslands fyrir að hafa neytt áfengis í skólabyggingunni. 21. október 2014 14:55
Dýrkeypt djamm Verzlinga Pöntuðu sér Hummer-limmósínu áður en þeir héldu út til Ítalíu í listaferð. 21. október 2014 16:51