Góður árangur af fjölskyldumeðferð vegna offitu barna Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 6. mars 2014 00:00 Þótt ávaxta- og grænmetisneysla barnanna sem tóku þátt í rannsókninni á áhrifum fjölskyldumeðferðar hafi aukist mikið borða fæst þeirra fimm skammta af ávöxtum og grænmeti á dag, að því er segir í grein Læknablaðsins. nordicphotos/afp
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar á áhrifum fjölskyldumeðferðar vegna offitu barna virðist lofa góðu, bæði til lengri og skemmri tíma. Þetta kemur fram í grein í Læknablaðinu þar sem greint er frá framkvæmd rannsóknarinnar. Göngudeild fyrir of feit börn er nú starfrækt á Barnaspítala Hringsins á grunni niðurstaðna rannsóknarinnar. Þar stýrir þverfaglegt teymi meðferðinni og fylgir eftir of feitum börnum og fjölskyldum þeirra. „Fjölskyldumiðaða atferlismeðferðin hafði jákvæð áhrif á heilsu og líðan bæði til skemmri og lengri tíma litið og er sérstaklega mikilvægt að benda á að hér er um að ræða breytingar á blóðmælingum, þunglyndi, kvíða, félagsfærni og sjálfsmynd. Þetta er það sem raunverulega skiptir máli og þarf að vera sýnilegra í allri umræðu um holdafar í stað þess að fókusinn í umræðunni sé alltaf á líkamsþyngdina sem slíka,“ segir Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í næringarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, sem er einn greinarhöfunda. Hún segir að einstaklega ánægjulegt hafi verið að sjá að sjálfsmynd barnanna hafi haldið áfram að styrkjast eftir að meðferð lauk. „Leiða má líkur að því að vissir meðferðarþættir hafi ýtt undir eða aukið færni sem eykur trú einstaklinganna á eigin getu.“ Úrtakið í rannsókninni samanstóð af 84 of feitum börnum á aldrinum 8 til 13 ára og einu foreldri hvers barns. Sextíu og ein fjölskylda lauk 12 vikna meðferð sem dreifðist yfir 18 vikur og var þátttakendum, sem voru valdir í rannsóknina með aðstoð skólahjúkrunarfræðinga á höfuðborgarsvæðinu, fylgt eftir í tvö ár eftir að meðferð lauk. Fyrir og eftir meðferð var mæld hæð og þyngd barna, hreyfing, dagleg neysla ávaxta og grænmetis, blóðþrýstingur og ýmis blóðgildi. Lagðir voru fyrir börnin sjálfsmatslistar til að meta andlega líðan og félagsfærni. Hæð og þyngd foreldra var mæld fyrir og eftir meðferð og einnig svöruðu foreldrar sjálfsmatslista fyrir þunglyndi. Í meðferðinni lækkaði líkamsþyngdarstuðull foreldra frá upphafi til loka meðferðar, að því er greint er frá í Læknablaðinu. Meðferðin bar því ekki einungis árangur fyrir börnin heldur einnig fyrir foreldra. Niðurstöður úr eftirfylgd benda þó til þess að foreldrum hafi ekki gengið nægilega vel að viðhalda þeim árangri þar sem þeir þyngdust aftur að meðferð lokinni. Greinarhöfundar benda á að offita barna hafi aukist á undanförnum áratugum og að brýn þörf sé á gagnreyndu meðferðarformi til að sporna gegn þessari þróun. Meðferðin sem var rannsökuð hér tók mið af bandarískri meðferð sem hefur verið í þróun í 30 ár.
Mest lesið „Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Innlent Ósætti vegna dymbilvikulokana í leikskólum Garðabæjar Innlent Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Innlent Voru send í skólasund eftir slysið Innlent Tvöfaldur verðmunur á Súðavíkurgöngum Innlent Guðrúnu frjálst að fara með ósannindi en þurfi að ábyrgjast fyrir dómi Innlent Mörg þúsund manns hafa skrifað undir afnám kílómetragjaldsins Innlent Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Innlent Grímuklæddir menn vistaðir í fangaklefa Innlent Fleiri fréttir „Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Ósætti vegna dymbilvikulokana í leikskólum Garðabæjar Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Tvöfaldur verðmunur á Súðavíkurgöngum Guðrúnu frjálst að fara með ósannindi en þurfi að ábyrgjast fyrir dómi Grímuklæddir menn vistaðir í fangaklefa Voru send í skólasund eftir slysið Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins Börn send fótgangandi í sund eftir bílslys Mörg þúsund manns hafa skrifað undir afnám kílómetragjaldsins Drengur á fjórða ári á gjörgæsludeild eftir slysið Nýr sendiherra Bretlands í fullu námi í íslensku Páskarnir líta þokkalega út þrátt fyrir kulda Um 36 prósent foreldra í Reykjavík hafa stytt dvalartíma Of miklar verðhækkanir á eldsneyti kalli á inngrip stjórnvalda Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Vilja lækka álögur tímabundið vegna hækkandi olíuverðs Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð „Hvað er að lögreglunni?“ Lögregla leitar manns Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Trausti í öðru sæti í Eyjum Sjá meira