Misnotaði tvær dætur sínar og keypti vændi Snærós Sindradóttir skrifar 25. mars 2014 00:01 Maðurinn var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot sín. VÍSIR/Stefán
Karlmaður var á dögunum dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dætrum sínum og vændiskaup. Maðurinn hlaut þriggja ára fangelsi fyrir brotin. Einn dómari í málinu skilaði sératkvæði og vildi dæma manninn í tveggja ára fangelsi. Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi strokið dóttur sinni, sem þá var ellefu ára, innanklæða og látið hana strjúka getnaðarlim sinn. Einnig stakk hann fingri í leggöng stúlkunnar. Síðar, þegar stúlkan var fimmtán ára gömul, káfaði hann á brjóstum hennar utanklæða þar sem hún lá sofandi í sófa á heimili hans. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir að káfa á lærum eldri dóttur sinnar árið 2009 og reyna ítrekað að káfa á kynfærum hennar. Stúlkan var þá nítján ára gömul. Maðurinn játaði brotin að hluta og krafðist vægustu refsingar. Hann krafðist jafnframt að bótakröfu dætra hans yrði vísað frá dómi. Í seinni ákæru á hendur manninum var honum gefið að sök að hafa tvívegis síðsumars 2013 greitt samtals 50.000 krónur fyrir vændi. Hann játaði brot sitt."Fyllerísrugl" Maðurinn bar fyrir sig að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar brot gegn yngri dóttur hans áttu sér stað. Hann sagðist muna eftir því að hafa káfað á stúlkunni og látið hana strjúka á sér liminn en kannaðist ekki við að hafa sett fingur í leggöng hennar. Aðspurður sagðist maðurinn hafa ruglast á dóttur sinni og þáverandi kærustu sinni. Yngri dóttir mannsins lýsti því fyrir dómi hvernig hún þóttist sofa á meðan faðir hennar káfaði á kynfærum hennar og lét hana strjúka getnaðarlim sinn á meðan. Þegar maðurinn hætti læsti hún sig inni á baðherbergi og grét. Stúlkan segir að hún hafi fyllilega áttað sig á atvikinu eftir að hafa verið dáleidd, sautján ára gömul.Neitaði sök Maðurinn neitaði alfarið að hafa káfað á kynfærum eldri dóttur sinnar en sagði að þau hefðu bæði verið drukkin þegar brotið átti sér stað og að þau hefðu sofnað í sama rúmi. Hann viðurkenndi að hafa strokið dóttur sinni um læri, bak og maga. Eldri dóttir mannsins bar fyrir dómi að hafa reynt að ýta föður sínum af sér en það hafi reynst henni erfitt sökum ölvunar. Fram kemur í dómnum að fjölskyldur dætra mannsins hafi vitað af brotunum um langa hríð. Ekki var kært fyrr vegna þess að maðurinn lofaði bót og betrun sem svo gekk ekki eftir.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent Færir nýársboðið fram á þrettándann Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Innlent Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Erlent Fleiri fréttir Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Sjá meira