Lífið

Tekur þú Facebook fram yfir kynlíf?

Þú kannski hummar og hugsar sem svo að þetta sé nú augljóst. Auðvitað vilja allir eða að minnsta kosti flestir frekar stunda kynlíf en hanga á Facebook eins og segir á vefnum Innihald.is.

En það er ekkert endilega svo því fyrr á þessu ári sýndi könnun sem University of Chicago Booth School of Buisness að flestir standast síður þá freistingu að skoða Facebook eða Twitter heldur en að stunda kynlíf. Sem sagt, samfélagsmiðlarnir eru meira freistandi en kynlífið.

Nýleg könnun sem University of Canterbury á Nýja Sjálandi gerði sýnir að það að stunda kynlíf sé sú afþreying ef svo má kalla sem flestir vilja stunda. Og það frekar en að þvælast um á samfélagsmiðlunum.

Í könnunninni var spurt um verstu og bestu hlutina sem fólk lagði stund á og hér má sjá hluta af niðurstöðunum:



Best:

1. Kynlíf

2. Neysla áfengis

3. Sjálfboðaliðastarf

4. Hugleiðsla/Trúariðkun

5. Hugsa um börn



Verst:

1. Að ná sér eftir veikindi

2. Facebook

3. Húsverkin

4. Að læra

5. Að senda sms



Sjá meira á Siggalund.is og Innihald.is.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.