Sömdu fyrir The Saturdays Kristjana Arnarsdóttir skrifar 15. júní 2013 09:00 Íslenska upptökuteymið StopWaitGo seldi diskósmell til stúlknasveitarinnar The Saturdays á dögunum. „
Þetta er stærsti áfangi okkar hingað til,“ segir Ásgeir Orri Ásgeirsson úr upptökuteyminu StopWaitGo en þremenningarnir seldu á dögunum lag úr sínum herbúðum til bresku stúlknasveitarinnar The Saturdays. Hljómsveitin nýtur gríðarlegra vinsælda í Bretlandi og því ljóst að sigurinn er stór fyrir upptökuteymið íslenska. Ásgeir segir að lagið verði á næstu plötu stúlknasveitarinnar. „Við vonumst bara til að úr þessu verði gerð smáskífa, lagið fái spilun í útvarpi og að það komi út myndband.“ Ásgeir segir ferlið hafa tekið sinn tíma og að þeir hafi sent út sjö útgáfur af laginu áður en allt var tekið í sátt. „Oft er það bara þannig að maður lendir á fólki sem þykist vita meira en maður sjálfur og það verður bara að kyngja því.“ Lagið sjálft hefur ekki enn hlotið nafn en Ásgeir segir það eins konar diskósmell. „Þetta er mjög skemmtilegur tími til að semja og selja lag með diskóívafi því akkúrat núna eru diskósveiflur í gangi í tónlistinni,“ segir Ásgeir og bendir á sumarsmellinn Get Lucky með Daft Punk og Pharrell Williams, sem og lagið Treasure með Bruno Mars. „Það er vonandi að þessi uppsveifla í diskóinu nýtist okkur og að við getum gert lagið að smáskífu sem fyrst.“ Spurður að því hvað þeir í StopWaitGo séu að bralla núna segir Ásgeir þá hafa nóg á sinni könnu. „Við erum með næg verkefni bæði hér á landi og úti. Við höldum okkur mjög uppteknum.“ The SaturdaysStúlknasveitin The Saturdays var stofnuð árið 2007 en hún er skipuð þeim Unu Healy, Mollie King, Frankie Sandford, Vanessu White og Rochelle Humes. Sveitin nýtur gríðarlegra vinsælda í Bretlandi og hefur hún síðastliðin þrjú ár hlotið verðlaun sem besta hljómsveitin á verðlaunahátíðinni „Women of the Year“ sem breska tímaritið Glamour heldur árlega. Um 1,3 milljónir hafa smellt á „like“-hnapp hljómsveitarinnar á Facebook.
Mest lesið Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Lífið Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Lífið Ætlar í pásu frá giggum Lífið Upplifa oft von í fyrsta sinn á Vík Lífið samstarf Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Lífið Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Lífið Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Lífið Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Lífið Fleiri fréttir Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sögulegur klæðnaður á dreglinum Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Gordon Ramsay gerir upp Íslandsævintýri „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Destiny's Child með óvænta endurkomu Jóhanna Guðrún og Ólafur giftu sig Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Bandaríkjaforseti birtir bull í bunkum Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Sjá meira