Innlent

Kveikt í fjölbýlishúsi í Keflavík

Íbúum í fjölbýlishúsi við Mávabraut í Keflavík var brugðið þegar reyk úr stigagangi tók að leggja inn í íbúðir þeirra í gærkvöldi. Sumir forðuðu sér út áður en slökkvilið kom á vettvang. Þá logaði eldur í rusli í geymslugangi í kjallara hússins og var hann við það að læsa sig í bíldekk, sem þar voru, þegar slökkviliðið kom á vettvang og gat afstýrt að hættulegt reykjarkóf myndaðist.

Einn íbúanna hafði náð að halda eldinum í skefjum og var hann fluttur á heilbrigðisstofnina vegna gruns um reykeitrun. Slökkviliðið reykræsti stigaganginn og nokkrar íbúðir. Ekki er vitað hver brennuvargurinn er, en þetta er í annað skiptið sem kveikt er í á þessum stað á skömmum tíma, sem veldur íbúum hússins áhyggjum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×